Die ersten 200 Zeilen.
Tvígrip! -Af því að ég er svartur?
Já, ég hélt það.
Tíu sekúndur eftir.
Fyrsta leikinn, fyrsta!
Kurt, hingað!
Koma með hann!
Nú er færi, Lenny!
Það er færi!
Hann var á línunni!
Fyrst vil ég þakka Earnshaw-fjölskyldunni
fyrir að lána okkur þetta fallega hús til að fagna sigrinum.
Já, fimm Fernando!
Þeir eru rosalegir!
Þú ert fullur, pabbi.
Við komum til að fagna skotum strákanna, ekki þínum.
Ég vil tala um það sem þið gerðuð í dag.
Þið lékuð rétt eins og ég hef alltaf beðið ykkur um.
Þið lögðuð allt í leikinn!
Og þegar bjöllunni var hringt
voruð þið sigurvegarar.
Ég vil að þið lofið mér einu.
Að leggja ykkur fram í lífinu eins og í leiknum í dag.
Svo að þegar bjallan hringir
iðrist þið einskis.
Skál fyrir þjálfanum!
Þið eruð fyrsta sigurliðið mitt.
Standið saman.
30 ÁRUM SÍÐAR BEVERLY HILLS, KALIFORNÍU
Morð!
Ég er helsti umboðsmaðurinn í Hollywood og þú ergir mig!
Nú læt ég Brad Pitt hætta í myndinni þinni.
Ég læt Juliu Roberts hætta! Ég hika ekki við það, Sandy.
Já, þú skalt slaka á.
Þakka þér fyrir.
Gleðilegan þjóðhátíðardag. Já, þú ert líka fínn.
Hvað eruð þið að gera, strákar?
Greggie, Keithie.
Hafið þið heyrt um Snáka og stiga? Það er frábært spil.
Ég spilaði það þegar ég var lítill.
Maður hefur ör sem snýst.
Og maður snýr. Lendi maður á stiga má maður klifra upp.
Ef maður lendir á snák rúllar maður niður og byrjar upp á nýtt.
Og hvað svo? Fær sigurvegarinn íþróttabrjóstahald?
Mér heyrist þetta spil vera leiðinlegt.
Nei, þetta var frábært spil. Við vinirnir spiluðum það á veturna.
Við fórum niður í kjallara og drukkum heitt kakó.
Ég gæti þegið heitt kakó núna.
Rita!
Þú verður að senda smáskilaboð. Hún er að þvo þvott.
Við vorum heima hjá Spielberg í gær.
Þau eiga 150 tommu sjónvarp. Getum við fengið svoleiðis?
Já, þegar þú leikstýrir E.T.
Biðstu vægðar.
Hvernig virkar þetta? Ég skil þetta ekki.
Er maður á skemmtiferðaskipi og sagar höfuð af fólki með vélsög?
Maður getur líka drekkt því.
Allt í lagi, nú skil ég.
Amma fyrir borð! 200 stig
Vill einhver svara?
Ég ætti kannski líka að fá mér kamillute fyrir hálsinn.
Hættu að senda fóstrunni skilaboð. Veistu ekki að það er dónalegt?
Farðu bara til hennar! -Af hverju? Þú sendir öllum skilaboð!
Ég sendi þau vegna vinnunar svo ég geti borgað ykkar skilaboð.
Ég er með allt sem þið vilduð. -Hver hringdi?
Ég veit það ekki. Becky svaraði.
Takk fyrir að laga þetta. -Almáttugur, Rita!
Þetta er ekki Godiva-súkkulaði. Ertu að byrla mér eitur?
Drottinn minn, haldið áfram að senda skilaboð.
Ég vil ekki heyra svona tal.
Hvað gengur á þarna?
Guð minn góður!
Ég gerði þetta óvart.
Mér er sama. Ertu ómeidd? Hvað varstu að gera?
Ég ætlaði að nota pésið.
Pésið? Hvað er það?
Pésið í bílnum. Til að spyrja það.
Þú meinar gps-kerfið, bjáni.
Rólegur, Keith. -Það hringdi einhver maður.
Hann sagði að Buzzer þjálfi væri farinn til himna.
Ég var að leita að himnum svo þú gætir farið þangað.
Hver er Buzzer þjálfi?
Hann var einstakur maður sem hafði mikil áhrif á pabba.
Það er hræðilegt.
Farðu og fáðu þér kakó með þeim.
Meiddirðu þig örugglega ekki?
Þú skvettir á bróður þinn, vina.
Eric! Þetta er mamma þín.
Drottinn minn! Eric! Er allt í lagi með þig?
Donna!
Ó, Guð! Bean! Vertu á öndinni!
Hvað gengur á?
Elskan mín!
Sæl, mamma.
Sæl, mamma.
Við sjáumst þar.
Er eitthvað að?
Já, ég segi þér það seinna.
Ég eldaði hrísgrjónaréttinn sem við sáum í þættinum hjá Rachel Ray.
Hann er vondur, mamma. -Eins og vegahræ.
Heyrirðu hvernig þau tala við mig?
Þú verður að segja eitthvað.
Þið vitið að pabbi ykkar vinnur hörðum höndum
við að þrífa húsið og skaffa mat handa okkur
Og svo...
keypti ég pítsu!
Það er allt í lagi.
Borðið þið bara pítsuna ykkar. Þið særið mig.
Þið særið mig mikið!
Það er víst þetta mánaðarlega.
Það er voðalegt.
Hver sér um útförina?
Frænka hans? Hún hlýtur að vera eyðilögð.
Er hún ennþá flott?
Ekki reita mig til reiði, Marcus.
Hvað?
Ef ég kemst ekki í jarðarförina
segðu lögreglunni að Arlene frá Applebee eigi sökina.
Nei, takk fyrir að hringja. Við hittumst þar.
Þjálfi er dáinn.
Útförin fer fram á föstudaginn.
Ég get ekki farið einn.
Geturðu komið með mér?
Auðvitað.
Ég fresta augnuppskurðinum.
Þú ert yndið mitt.
Nú sendi ég þig í slökunarheim.
Reynum nú að haga okkur eðlilega.
Hvað er að sólgleraugunum?
Ég vil ekki gefa þeim ástæðu til að kalla mig... -Hollywood!
Að sjá þetta, Kurt McKenzie.
Og allt McKenzie-liðið. -Komdu hingað.
Deanne, þú ert glæsileg. -Er það?
Konan mín er þarna. Farðu og heilsaðu henni.
Krakkar. -Ég sé að rassinn hefur stækkað.
Ertu með litla Kardashian þarna?
Og þú ert orðinn eins og Michael Vick með lotugræðgi.
Sæl, Roxanne.
Þú manst kannski ekki eftir mér. Ég kom í brúðkaupið þitt.
Ég dansaði uppi á borðum. Deanne McKenzie.
Alveg rétt! Sæl, Deanne. -Gaman að sjá þig.
Þú ljómar.
Þér fer svo vel að vera ófrísk.
Hvað meinarðu eiginlega?
Ég er bara að grínast!
Þú hefðir átt að sjá svipinn á þér.
Lenny litli Feder. -Mamma Ronzoni hefur stækkað.
Að sjá þennan girnilega hnakka.
Og þér gengur svo vel! Gefðu mömmu koss.
Má ég kyssa á kinnina?
Hatturinn stakkst í augað á mér en ég jafna mig.
Hvað með tengdasoninn? Ég frétti að hann væri heimavinnandi.
Dóttir mín þrælar alla daga til að borga reikningana
meðan aulinn er heima að þrífa.
Ég skil ekki af hverju þú talar svona við mig
þegar þú ert eins og Idi Amin með þotuhreyfil á höfðinu.
En indælt að hann... -Roxanne, þetta er mamma mín.
Sæl, mamma Ronzoni. Ég er kona Lennys litla.
Þú hefur aldeilis náð þér í kryddaða ostakúlu.
Já, hún er bragðgóð.
Því trúi ég.
Ég er bófi. Tík.
Sagði ég þér ekki að slökkva á símanum, Greg?
Jú, en þetta eru boð frá sálfræðingnum.
Nei. Enga síma. -Enga síma? Þá er ég farinn.
Higgie! -Hver er í jarðarfararstuði?
Fyrirgefið, dauðinn hefur undarleg áhrif á mig.
Blessaður, McKenzie.
Hendurnar á þér eru svo mjúkar. Notarðu ennþá Palmolive?
Blessaður, Lenny.
Ég hélt að þú ætlaðir að fara að æfa. -Hvað áttu við?
Þú ert feitur. -Nei! Þetta eru góðar fréttir.
Ég vildi fá umboð fyrir ykkur. Ertu þriðji Olsen-tvíburinn?
Ekki svona hátt. Eru þetta krakkarnir þínir?
Og hver er þetta? Er hún nokkuð barnfóstran?
Nei, þetta er vinkona okkar frá Kína.
Jæja. Ég hef líka séð þá vefsíðu. -Nei, nei.
Hún er skiptinema og konan mín bauð henni til okkar.
Er konan þín hrifin af stelpum? En gaman.
Hollywood. Hann er alltaf svo heppinn.
Hún er bara skiptinemi.
Blessaðir!
Lamonsoff! -Kemurðu í kádiljálk.
Þannig gerum við hlutina.
Og þú hefur stækkað. Notarðu B-skálar núna?
Flott eyru. Nærðu NFL-pakkanum með þeim?
Flottur bíll. Selurðu garðhúsgögn og krakk?
Ég er meðeigandi í Branchville Garðhúsgögnum.
Nú er ég stjórinn. -Gott hjá þér, Eric.
Gaman að þú komst með mömmu þína. -En fyndið.
Þetta er eins og að heilsa liðsmanni Eagles. -Sjáumst seinna.
Almáttugur. Þetta er umhyggjusami skipstjórinn á MS Dramatíkinni.
Nú hefur hann úr nógu að moða.
En leiðinlegar aðstæður. -Já, ömurlegar. Gott að sjá þig.
En nú þjálfar Buzzer lið á himnum. -Það er rétt.
Hann hefur Wilt, Pistol Pete, Dr. J....
Dr. J. er enn á lífi.
Þess háttar náunga, meina ég. -Já.
Þú lítur vel út.
Ef Elvis væri úmpalúmpa væri hann hér lifandi kominn.
Ég grínast ekki við jarðarfarir, það er lítilsvirðing.
No comments yet. Be the first to leave one.