Ted

Ted

Download Icelandic undertekster

Udgivelsesinfo

Ted 2012 720p BluRay x264-DAA
En kommentar af rippmaster

Tags

BluRay
x264
720p
720
Udgivet den: 2021-01-20
Downloads: 41
Hørehæmmede: No

Forhåndsvisning af Icelandic undertekster

De første 200 linjer.

Sagt er að töfrar hafi horfið úr heimi okkar fyrir margt löngu.

Og að mannkynið geti ekki lengur uppfyllt þrár sínar...

með mætti óskarinnar.

Fyrir þá sem hafa glatað stórkostlegri sýn bernskuaugnanna...

er hér lögð fram saga af litlum dreng

og töfrajólaósk...

sem breytti lífi hans um alla eilífð.

Þetta hófst 1985, í bæ skammt utan við Boston.

Það var aðfangadagskvöld og öll börnin voru kát.

Þessi sérstaki árstími...

þegar börnin í Boston safnast saman...

og berja gyðingakrakkana.

Greenbaum! Ansans!

Náið honum!

En það var eitt barn sem var ekki svo kátt.

John litli Bennett...

staki drengurinn í hverju hverfi...

sem á erfitt með að eignast vini.

Strákar, má ég vera með?

Hypjaðu þig héðan, Bennett. - Snautaðu burt, Bennett!

Hunskastu héðan, Bennett!

Já, Bennett, láttu þig hverfa.

John þráði af öllu hjarta...

sannan vin sem hann gæti kallað sinn.

Og hann vissi að ef hann myndi finna þann vin...

myndi hann aldrei sleppa af honum takinu.

Líkt og gerist á hverju ári þá rann jóladagsmorgunn loksins upp.

Öll börnin opnuðu gjafirnar sínar með jólakæti.

Og fyrir John litla Bennett...

leiddi jóladagurinn til einstakra nýrra kynna.

Ja hérna!

Sveinki hefur tekið eftir því hvað þú varst þægur þetta árið.

Gleðileg jól, John.

Ég elska þig!

Hann talar!

Ég ætla að skíra þig Tedda.

John þótti strax vænt um Tedda.

Það var eitthvað við bangsann...

sem lét honum finnast að hann hefði loksins eignast vin...

sem hann gat deilt innstu leyndarmálum sínum með.

Ég elska þig!

Ég elska þig líka, Teddi.

Ég vildi að þú gætir talað við mig í alvöru

því þá yrðum við bestu vinir um aldur og ævi.

Ef maður getur verið viss um eitthvað...

þá er það að ekkert er máttugra en ósk ungs drengs.

Nema Apache þyrla.

Apache er með vélbyssur og flugskeyti.

Hún er ótrúlega vel vopnum búin.

Sannkallað drápstæki.

Jæja, raunin var sú...

að John valdi fullkomið kvöld til að óska sér.

Teddi?

Teddi?

Teddi?

Knúsaðu mig.

Þú ert besti vinur minn, John.

Varstu... Varstu að tala?

Ekki vera svona hissa.

Þú óskaðir þess, ekki satt?

Já. Ég óskaði þess.

Jæja, hér er ég.

Áttu við að við fáum að vera bestu vinir í alvöru?

Í alvöru.

Um aldur og ævi?

Það hljómar vel.

John var hamingjusamasti drengur í heimi

og hann get ekki beðið eftir að segja öllum góðu fréttirnar.

Mamma, pabbi, hvað haldið þið? Bangsinn minn er lifandi!

Virkilega? En spennandi.

Nei, mamma, hann er lifandi í alvöru. Sjáðu.

Gleðileg jól, gott fólk.

Jesús H. Andskoti!

Verum öll bestu vinir.

Guð minn góður!

John, farðu burt frá honum. Komdu hingað strax.

En, pabbi... - Komdu hingað!

Hlustaðu á mömmu þína! Komdu!

Helen, sæktu byssuna mína. - Nei, pabbi!

Er það knúsbyssa?

Sæktu byssuna og hringdu á lögregluna!

Afsakaðu, herra Bennett, ég ætlaði ekki að hræða neinn.

Ég vildi bara að við John yrðum vinir.

Já, pabbi, ég óskaði mér í gærkvöldi að Teddi væri lifandi

og óskin mín rættist.

Hamingjan góða!

Þetta er kraftaverk.

Þetta er jólakraftaverkið.

Þú ert eins og Jesúbarnið.

Það leið ekki á löngu áður en fréttin af kraftaverki Johns

barst um allt land.

Frá úthverfi Boston...

kemur hreint ótrúleg saga.

Uppstoppað dýr ungs drengs...

hefur lifnað við af óþekktum ástæðum...

Sjáið hvað Jesú gerði! Sjáið hvað Jesú gerði!

Áður en leið á löngu var Teddi orðinn þjóðþekktur.

Halló, Teddi.

Þú kemur mér á óvart.

Ég hélt að þú værir dálítið hærri.

Ég hélt að þú værir fyndnari.

En þrátt fyrir alla frægðina...

gleymdi Teddi aldrei besta vini sínum, John.

Þruman nær okkur ekki, er það?

Nei, við erum þrumufélagar og þruman veit það.

Við erum alveg óhultir.

Teddi?

Já, John?

Lofarðu því að við verðum alltaf saman?

Ég lofa því.

Þrumufélagar til æviloka.

Þrumufélagar til æviloka.

Og það var loforð sem hvorugur þeirra myndi gleyma.

Svo hvar eru John og Teddi í dag?

Ég skal orða það svona.

Sama hvað þú slærð rækilega í gegn í heiminum...

hvort sem þú ert Corey Feldman, Frankie Muniz, Justin Bieber...

eða talandi bangsi...

að lokum er öllum skítsama.

FLUGVALLARHANDTAKA! DÆGURSTJARNA GÓMUÐ MEÐ SVEPPI

NÚ Í SÝNINGU STJÖRNUSTRÍÐ: ÓGNAVALDURINN

JOHN BENNETT Í sambandi með Lori Collins

LORI COLLINS Í sambandi með John Bennett

Heima er best

SKITHÆLL

Voga ég mér að líta á klukkuna?

Ég er bara að segja að Boston konur séu á heildina litið...

fölari og ljótari en konur annars staðar frá.

Kjaftæði. Hvað um Lori? Hún er flott.

Nei, Lori er frá Pennsylvaníu. Hún er ekki Boston stúlka.

Þær eru ekki svo slæmar.

Það að þú þurfir að segja að þær séu ekki svo slæmar

þýðir að þær eru svo slæmar.

Hefurðu heyrt Boston stúlku fá fullnægingu?

Ó, já! Ó, já! Fastar! Fastar!

Ó, guð hvað þetta var gott.

Nú treð ég köku í smettið á mér!

Drottinn minn, þetta er dauft.

Það kemur mér ekki í vímu. Ég þarf að tala við grasgaurinn minn.

Það dugar mér.

Það er ömurlegt. Ég tala við hann.

Þú ættir ekki að kvarta við dópsala.

Ég hef þekkt hann lengi. Alveg frá 11l9.

Manstu? Ég var alveg: "Fjárinn, 11l9. Ég þarf að verða skakkur."

Er klukkan 9.30? - Já.

Fjárinn, ég þarf að fara í vinnuna!

Ég veit ekki hvort ég get ekið!

Ég skal aka þér. Mér líður ágætlega.

Liberty bílaleiga

Fjandinn! - Fjárinn.

Skrambinn!

Johnny, mér þykir þetta leitt. Bíllinn birtist fyrirvaralaust.

Er þetta slæmt?

Skrambinn!

John! Get ég fengið að tala aðeins við þig?

Fjárinn.

Farðu bara. Ég kem mér héðan.

Hæ, Thomas, hvernig hefurðu það?

Auli!

Mín mistök. Ég var að tvíta.

John, klukkan er næstum tíu.

Ég veit. Mér þykir þetta leitt. Þetta var ekki mín sök.

Hvað meinarðu?

Ég var ekki viðbúinn framhaldsspurningu.

John, það eina sem þú þarft að gera er að klúðra ekki málunum

og þú færð starfið mitt þegar ég fæ stöðuhækkunina í næsta mánuði.

Þú verður nýi útibússtjórinn. Þú þarft bara að klúðra engu.

Mér er það ljóst. - Gott.

Það gleður mig að heyra.

Því eftir mánuð gæti mitt líf orðið þitt.

Stöndugur útibússtjóri með 38.000 dali í árslaun...

sem er persónulegur vinur Toms Skerritt.

Ekki slæmt líf, er það?

Nei.

Ég ætla að sýna þér dálítið sem ég sýni sjaldan

því ég vil ekki að fólk komi öðruvísi fram við mig.

Búmm. Þetta eru ég og Skerritt.

Ja hérna!

Heldur betur, "ja hérna".

Ég dreg af þér fyrir að beygla bílinn og mæta seint í dag.

Reyndu að sýna meiri ábyrgð á morgun.

Ég geri það, ég lofa því.

Ég bregst þér ekki, Goose.

Hvað þá?

Top Gun.

Og?

Tom Skerritt.

Ég veit það.

Komdu þér héðan. - Takk.

Hér eru lyklarnir, leigusamningurinn...

og ókeypis kort af Boston.

Takk fyrir að velja Liberty. Akið varlega.

Takk. - Kærar þakkir.

Þú varst víst gómaður.

Það er hörmung að sjá þig. Hvað kom fyrir?

Ég veit það ekki, Ég var út úr heiminum í gær.

Samkvæmt símanum sendi ég einhverjum SMS kl. 3.15 og bað hann að berja mig.

Og svo kl. 4.30 sendi ég sömu manneskju SMS og sagði "takk".

Og manstu ekki eftir því? - Nei, ekki frekar en síðast.

Þetta virðist dálítið hommalegt.

Kommentarer

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left