I Love You, Man

I Love You, Man

Download Icelandic undertekster

Udgivelsesinfo

I Love You Man 2009 720p BluRay x264 x0r
En kommentar af rippmaster

Tags

BluRay
x264
720p
720
Udgivet den: 2021-06-16
Downloads: 48
Hørehæmmede: No

Forhåndsvisning af Icelandic undertekster

De første 200 linjer.

ÉG ANN ÞÉR, MAÐUR

Lítur þetta ekki vel út?

Jæja, ég ætla að gera klasa af íbúða- og vinnuloftum

meðfram þessu svæði. Og... komdu hingað.

Ég stefni að matsölu- og verslunarsvæði með hverfisyfirbragði

á torginu.

Mér datt jafnvel í hug að þú, Denise og Hailey

gætuð opnað útibú frá búðinni ykkar.

Í alvöru? Því Denise er alltaf að tala um

að opna útibú.

Það væri frábært.

Landið er dýrt svo ég gæti ekki byggt strax

en þegar ég sel Ferrigno-húsið

get ég greitt útborgunina

og samt átt nægt fé eftir fyrir veisluna í Santa Barbara.

Hvað áttu við? Hvaða veislu?

Zooey, ég veit að það eru aðeins liðnir átta mánuðir

en ég er svo brjálæðislega,

geðveikislega, fáránlega ástfanginn af þér.

Viltu giftast mér?

Já! Þetta gerðist fyrir tveim mínútum, Hailey.

-Trúirðu þessu? -Nei. Þetta er stórkostlegt.

Ég hef farið á óteljandi stefnumót

og þú giftist frábærum náunga

sem gengur fyrir tilviljun inn í búðina okkar?

En sætt. Hún veit ekki að hún er í hátalaranum.

Þú veist ekki hvað þú ert heppin.

Það er ómögulegt að finna góðan mann í þessari borg.

-Ég veit. -Ég hélt við værum að ná saman.

-Hamingjan góða. Í alvöru? -Eiginlega.

Því miður, eiginlega ekki.

-Viltu bjóða Denise í hópsamtal? -Hringdirðu fyrst í mig?

Æðislegt. Já.

Bíddu aðeins.

Hæ.

Hæ.

Ég er hrifin af landsvæðinu. Það er kjörið.

Það gleður mig.

Ég veit að hverfið er dálítið, þú veist...

Z0, ég trúi ekki að þú hafir ekki hringt fyrst í mig!

Þú ert svo geggjuð. Hailey er fyrst í hraðvalinu.

Ég er að grínast. Ég er himinlifandi.

Mér finnst ég þurfa að æla.

Bíddu.

Barry þolir ekki þegar ég er í húsinu á pókerkvöldi.

Gefðu mér andartak, feiti auli!

Hypjaðu þig út úr húsinu.

-Zooey var að trúlofa sig! -Hverjum?

-Ertu að grínast? Peter. -Hverjum? Mér.

-Ég þekki ekki Peter. -Ég hef hitt hann 20 sinnum.

-Þú hefur hitt hann 20 sinnum. -Ég þekki ekki Peter.

Ég veit ekki hver hann er.

Við höfum farið á 20 stefnumót með honum.

Ég hef aldrei hitt Peter.

Þú ert svo mikið fífl.

Fyrirgefðu, Zo. Hafið þið ákveðið daginn?

Já, 30. júní í Santa Barbara.

Peter er búinn að bóka staðinn sem við fórum á löngu helgina.

Svo rómantískt.

En hvað hann er rómantískur.

Er það þar sem þið riðuð í fyrsta sinn?

Nei.

Nei, það var heiti potturinn í Mexíkó.

Alveg rétt. Santa Barbara var bara munnmök.

Stelpur.

Alveg rétt. Heiti potturinn.

Þú varst á túr í Santa Barbara og vildir bíða.

Þú ert svo gamaldags, Zooey.

-Þú sagðir þeim frá heita pottinum. -Kannski.

-Ja hérna. Þrítugasta júní? -Já, ég veit. Það er stutt í það, en...

Peter er indæll

og hann fer niður á þig sex sinnum í viku.

Eftir hverju bíðurðu?

Gifstu honum. Ekki bíða.

Klófestu tunguna hans, stelpa.

Þetta verður frábært.

Ég hringi í ykkur síðar.

Hann er gullfallegur. Hann er óáberandi. Hann er fullkominn.

Ég veit! Nei, hann er bestur. Mér finnst ég svo heppin.

Allt í lagi. Allt í lagi, Debbie. Ég tala við þig á morgun. Bless.

Elskan! Ég hef einokað símann.

-Í hvern viltu hringja? -Ég þarf þess ekki.

Foreldrar mínir eru líklega sofandi svo ég tala við þá að morgun.

Viltu ekki segja neinum vinum frá þessu?

Ég hringi um helgina.

Virkilega? Hvað um Tevin?

Þú talar við hann 20 sinnum á dag.

Já, hann vinnur tveim básum frá mér.

Ég hitti hann á mánudagsmorgun.

Eða, hvað heitir hann? Sá sem þú skylmist við.

-Gil? -Gil.

Gil. Gilliam.

Hann er ekki beinlínis "hringja strax í" vinur.

Skálum.

-SælI! -Sæl.

-Til hamingju. -Takk, mamma.

-Afbragðsgott kjöt. -Svo gott.

-Þetta er ljúffengt. Kærar þakkir. -Svo sannarlega, mamma.

Takk.

En átti Peter einhverja góða vini í uppvextinum?

Ég man ekki eftir neinum.

Zooey,

pabbi vann hjá IBM svo við fluttum oft þegar ég var krakki.

Robbie tókst alltaf að eignast vini.

Hann vildi líklega totta á þeim tippin, en...

Oswald!

Nei, mamma, ég vildi það.

En hann þarf ekki að nota svona talsmáta.

-Vissulega. -Hvers vegna?

Sonur minn er hýr maður og ég tek lífstíl hans opnum örmum.

Það er satt. Pabbi ann hommum.

Ég gerði hann að heiðurshomma í síðasta mánuði.

Málið er, Zooey, að Peter hefur alltaf náð betri tengslum við konur.

Ég skil það alveg því hann er frábær kærasti.

Takk, unnusta.

Þú verður líka að skilja, Zooey,

að Peter varð kynþroska mjög snemma.

Ég fór með hann í sund þegar hann var 12 ára.

Strákurinn var með kjarr á við fertugan Serba.

Ekki láta svona. Pabbi, hættu að tala.

-Gott að vita það. -Flott.

Skýlan var full af stálull. Vertu stoltur.

Almáttugur.

Hver bauð þessum grínista?

Þetta er málið. Peter hefur alltaf verið "vinkonunáungi".

Hann setti alla sína einbeitingu og orku í sambönd sín

og allir karlkyns vinir hans urðu útundan.

Zooey, ekki hlusta á hann. Það er 8 ára aldursmunur á okkur.

Hann rétt ólst upp í sama húsi.

Þetta er fáránlegt. Hvað er skrítið við að ég hafi átt vinkonur?

Ekkert. Við erum bara að segja að þú hafir aldrei átt neinn besta vin.

-Hver er besti vinur þinn? -Ég á tvo.

Hank Mardukas hefur verið nánasti vinur minn

síðan á fyrsta ári okkar hjá IBM.

-Svaramaður í brúðkaupinu okkar. -Já.

Ég hef talað við hann í síma 2-3 sinnum í viku í 30 ár.

Og svo er það Robbie.

Ekki spurning.

-Er Robbie hinn besti vinur þinn? -Rétt. Og Hank Mardukas.

Á hvað í fjandanum er hann að glápa?

DAVIS DUNN FASTEIGNIR KALIFORNÍU

Davis Dunn fasteignir, við hvern viltu tala? Andartak.

Andartak. Gefðu honum samband við Tevin.

Það er mjög nálægt miðbænum. Hve nálægt honum viltu vera?

Takk, vina.

Ég get ekki komið þér svo nálægt. Af því skólarnir eru hræðilegir.

Skýjakljúfarnir voru upplýstir. Ég fór niður á annað hnéð.

Hún var steinhissa.

Ég er afbrýðisöm, Peter, því þú gafst mér aldrei tækifæri.

En þú verður frábær eiginmaður.

Hættu þessu. Hættu. Jæja, þú mátt halda áfram núna.

Daginn, Irayce.

-Sæll, Tevin. -Sæll, maður.

Hvað er svona fyndið?

Náungi í draumadeildinni í hafnabolta

sendi mér myndbandsbrot.

Það er amma á Sybian tæki.

Hvað er það?

Það er títrarasöðull

sem konur sitja á sem veitir þeim rosalega fullnægingu.

Sjáðu þetta.

-Skrambinn! -Er þetta ekki sjúklegt?

Mjög. Þetta er mjög sjúklegt.

Svo æðislegt.

Hvað er títt, gaur? Hvernig gengur með Ferrigno samninginn?

Vel. Ég er að undirbúa sýningu eftir tvær vikur.

Frábært. Ég varpa þessu fram

því þetta er ansi stórt hús:

Ef þú vilt meðstjórnanda í þessu skal ég glaður slást í lið með þér.

Nei, ég veit. Ég vil takast á við þessa áskorun einn

og sjá til hvernig gengur...

-Ég met boðið mikils. -Ekkert mál.

Hvað um það, ég og kærastan mín...

Við erum að undirbúa sérstakt kvöld og mig lang...

Hún er gusari! Hún gusar! Peter, við erum með gusara!

Gamli Geysir!

Halló, unnusta.

Hæ, elskan. Ég steingleymdi að það er komið að mér að halda konukvöld.

Ekkert mál. Ég fer á skylmingaæfingu.

Ég fæ mér bjór með Gil og strákunum eftir á. Segi þeim stórtíðindin.

-Frábært! Ég verð að hætta. Elska þig. -Ég elska þig líka.

Peter! Peter!

Ég sendi þetta til þín.

-Nei, ég vil það ekki. -Þú fékkst þetta.

Almáttugur!

Bíddu, ég smellti ekki einu sinni... Hvað í...? Ég smellti ekki á það.

Hún er með kjarr eins og broddgöltur.

Ég vil ekki vita um kjarrið hennar. Sæl, Lynette.

-Bíttu í þig! -Góð viðureign, Gil. Fín viðureign!

Vel gert.

Ja hérna. Það var lagið, lagsi.

-Frábær viðureign. -Éttu skít.

Mér þykir fyrir því að ég missti stjórn á skapinu áðan.

Ég sá bara ekki snúninginn fyrir.

Hafðu ekki áhyggjur.

Þú sýndir góð tilþrif.

Hefur einhver séð hanskann minn?

Gáðirðu undir hlífinni þinni, ballartuska?

-Éttu skít, Larry! -Éttu skít, Eugene.

-Snilld. - Takk, Larry.

Kommentarer

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left