De første 200 linjer.
Gaggó.
Kunnuglegt? Já.
Það getur verið erfitt að vera táningur,
ég ætla ekki að ljúga að ykkur.
En ef maður er táningur og veröldin hentar manni ekki
er maður í slæmum vanda!
Því meira sem maður reynir að falla í hópinn, því vandræðalegra.
Sjáið þennan vesaling.
Ferlegt!
En ef þið haldið að það versta sem þið getið orðið
sé stór og vandræðalegur táningur
ættuð þið að prófa að vera yfir 90 kílóa táningshundur
með risadisk vafinn um hálsinn!
Það gerir mig sannarlega vinsælan.
Sem betur fer er auðvelt að ná honum af. Sjáið.
-Marmaduke! -Sagði það!
Hvar ertu?
Rólegur.
Vel á minnst, ég er Marmaduke. Það er oft öskrað á mig.
Komum, hittum fjölskylduna. Tvífætlingana.
Þið munuð elska þá.
Hér kem ég!
Þessi litli lærlingur er Brian.
Honum finnst gaman að vera með mér.
Frá, félagi! Ég sé ekkert!
Já, ég er sjálfur mjög upptekinn. Ég hitti þig seinna.
Þessi vinsæla hérna er Barbara. Henni finnst gaman að leika við mig.
Barb, þú hendir, ég sæki.
-Svona getur hann verið. -Ekki svona.
Er einhver að elda?
Matur!
Debbie er svöl og minn helsti matarfélagi.
Hún laumar að mér steik eða kalkún öðru hverju.
Þess vegna held ég að henni sé sama þegar ég fæ mér sjálfur.
Komdu til pabba.
Heitur ostur! Ó, heitur ostur!
Marmaduke!
Þessi litla er Sarah.
Er hún ekki sæt? Hún er aðalaðdáandi minn.
Það er mikilvægt á þessum aldri að börn hreyfi sig
svo ég reyni að fara með hana Í göngutúr daglega.
Hún hlær æðislega, ekki satt?
Þarna er eigandi minn, Phil.
Hann er markaðsmaður hjá fyrirtæki með hundamat.
Ég kalla hann stundum Doktor Nei því hann er alltaf með reglur.
Ekki slefa.
Ekki gelta. Ekki ráðast á bréfberann.
Sjáum hvort hann hafnar flottu holunni sem ég er að grafa.
Marmaduke, nei!
Sko? Doktor Nei er kominn.
Af hverju ekki að sjá til?
Ég mun finna Kína!
Þessar aðfarir eru grimmilegar og óvenjulegar.
-Ég hata vatn. -Svona nú. Sittu.
-Sko, allir hafa sinn veikleika. -Sittu.
-Vatn er minn Akkillesarhæll. -Sittu.
-Sest ekki í þetta baðkar. -Sittu, sittu, sittu.
Sittu, Marmaduke!
Hvað get ég sagt? Ég er veikur fyrir krakkanum.
Bless-bless.
Phil hatar þetta.
-Hvert ertu að fara, Sarah? -Kyrr.
Það er ekkert gott við að fara í bað nema þetta!
-Gerðu það, Phil. -Ekki aftur.
Marmaduke!
-Komum! -Marmaduke!
Mér finnst líka gaman að veita Phil smá hreyfingu.
Hann hírist á skrifstofu allan daginn. Komdu, Phil.
-Þetta er rétti andinn! -Komdu hingað!
Hérna!
Komdu hingað, í gegn, Phil! Ég er hérna!
Já, komdu!
Ekki núna...
Maður grípur ekki í skottið á tígrisdýri!
-Marmaduke! -Hringið í Dýravernd!
Það er brjálaður hundur laus!
Frelsi!
Hæ, pabbi. Hvað ertu að gera?
Myndi það drepa þau að búa til nýjar hundadyr?
Ég var tveggja mánaða gamall þegar þau settu þessa upp.
Ég hafði meiri áhrif þegar ég var lítill. Fortíðarleiftur.
Ó, hann er svo sætur!
Sko? Brjálæðislega sætur.
Sjáið þennan indæla Marma-hvolp.
Komdu kallinn!
En ég skil þegar maður stækkar upp í þetta. Ekki fallegt.
-Ég myndi líka hunsa mig. -Komdu hingað!
Heyrðu, ég er að tala!
Jæja, ég reyni að erfa hlutina ekki við Phil.
Hann er nú bara mannlegur.
Þess vegna geri ég í því að fara aldrei svangur í rúmið.
Sjáum hvað er til.
Pylsa úr grillinu um daginn, hún þarf að anda í nokkra daga.
Þetta er tækifærið okkar. Kalifornía, stóru deildirnar.
Í stóru deildunum nota þeir stera og halda framhjá með ofurfyrirsætum.
Þetta er markaðsstarf með lífrænan hundamat.
Ég held að við björgum okkur.
Pepperoni-pítsa. Skór Phils? Nei, geymi mér þetta í eftirréttinn.
Og ég veit ekkert hvað þetta er.
Er ekki í lagi með okkur í Kansas?
Viljum við það? Bara að það sé í lagi með okkur?
Kem inn til lendingar.
Ég vil veita ykkur það sem þið eigið skilið.
Ég vil stærra hús
með svefnherbergi sem ekki lyktar eins og kjötgeymsla.
Þetta er tækifærið okkar.
Ef þetta er tækifærið okkar ættum við að nýta það.
En þú verður að segja krökkunum það.
Samþykkt.
Láttu mig fá þetta.
Heyrðu, ég var ekki hættur!
Engar áhyggjur, ofurfyrirsætan mín er hérna.
Vál
Bíðið... Bíðið...
-Marmaduke! -Marmaduke!
Hvað ástu?
Ég veit að þetta er ungæðislegt en ég hef ekkert annað.
Hana nú.
Dagur í lífi gamla Marmadukes.
-Þetta er ferlegt! -Fyrirgefið mér.
Þetta var frekar mikið, jafnvel hjá mér. Vondur Marmaduke.
Allt í lagi, nóg komið. Ljósin slökkt.
Vöfflur, vöfflur, vöfflur, vöfflur, vöfflur!
Já!
Vöfflur á laugardagsmorgni! Debster er best!
Rólegur, kallinn! Maður á að njóta vöfflu, ekki gleypa hana!
Þetta er stjúpbróðir minn, Carlos.
-Segðu hæ, Carlos. -Hæ, Carlos.
Hann er svalur af ketti að vera, sem hjálpar
því í raun er hann eini vinur minn.
-Ertu reiðubúinn fyrir óvænt tíðindi? -Láttu vaða.
Phil var að tilkynna um nýja vinnu. Við flytjum til Orange-sýslu!
Haltu kjafti! Í alvöru?
Engin lygi! Ég var svo hneykslaður að þetta hrökk upp úr mér.
Carlos, þetta er ógeð!
Ég veit að það tekur tíma að aðlagast
en þú eignast marga nýja vini þarna.
Mér finnst það hljóma flott.
Hverju skiptir það þig? Þú spilar bara tölvuleiki.
Þetta er óréttlátt!
Ég er sammála Barböru.
Vitið þið hve mörg bein ég gróf í bakgarðinum?
Krakkar, þetta er tækifæri lífs míns.
Við fáum stórt hús með sundlaug og fyrirtækisbíl.
Gæludýrin frétta það alltaf síðust!
Ég veit ekki einu sinni hvar Orange-sýsla er!
Hvað er málið? Sagði ég eitthvað?
Dálítið sem þú hefðir ekki átt að segja.
Á yfirleitt einhver gæludýr þarna? Ég hef ekki séð einn einasta hund.
Það er erfitt að fyrirgefa þér ef þú meinar ekki...
Það er í lagi með hana.
Það eina sem ég hef komist að um The O.C. hingað til
er að enginn á gæludýr og Seth er algjör dramadrottning.
Þú ert mesta dramadrottningin.
Ég? Það ert þú, Carlos.
Þú ert yfir 90 kíló af drama, með rauða hálsól.
Er það já? Þessu samtali er lokið.
Nei, nei, nei!
Skotsæti. Klikkar aldrei.
Svo kom flutningsdagurinn.
Það var von í loftinu og spenna hjá öllum í fjölskyldunni.
Jafnvel Barbara reyndi að hjálpa til.
-Ég á hann... -Við Carlos hefðum gert það líka
en við vorum sendir með flugfrakt og læstir inni!
Hleypið mér út. Ég er ekki dýr!
LIFANDI DÝR
Ó, jú, ég er það.
Sjáið hvað ég er með. Kjötbollurnar hennar Debbie!
-Phil er minn maður! -Gjörðu svo vel.
Hann sér um sína.
Ég veit ekki, Carlos. Eitthvað er gruggugt við þetta.
Kjötbollurnar hennar Debbie. Ekki efast!
Ég veit að ég ætti ekki að éta hana en ræð ekki við mig.
Góður, kallinn! Góður, kallinn!
Ó, já. Ó, já.
Mér líður undarlega.
Þetta eru hræðileg mistök.
Ég bað um fyrsta farrými!
Ég held að Phil hafi sett eitthvað í bollurnar.
Hefur þú einhvern tímann litið á loppurnar á þér?
Virkilega skoðað þær, á ég við?
Já, já. Ég fylgdi þér Í mörgum ævintýraferðum.
En ég fer á undan þér yfir í þennan mikla leyndardóm.
Timbur!
Fallinn og út.
Vaknaðu! Ég er vakandi! Komdu, Phil, drífum í þessu.
Sami hundur, annað gólf.
Já! Ný borg, nýtt hús, ný lykt.
Góðan daginn, Orange-sýsla!
Ó, já. Bíðið aðeins. Sáuð þið hundadyrnar?
Þær passa! Þær passa! Sjáið þetta.
Það er útsýni yfir hafið! Og sundlaug!
Þetta gras er svo grænt!
Og þetta er langbesta baðherbergi sem ég hef haft.
Úr því minnst er á það, smá næði kannski.
Ó, já, brún hálsól. Gott það gerir augun áberandi.
Komdu, Phil, drífum okkur.
Er það undarlegt að yfirmaður þinn vill hitta þig í hundagarðinum?
Þannig er það í Kaliforníu.
Don er dálítið sérvitur en hann nær árangri þess vegna.
No comments yet. Be the first to leave one.