Prvních 200 řádků.
Hæ, stjóri.
Hvað ertu að gera hér enn þá? Ég hélt þú færir snemma.
Já, ég er að reyna það.
Því er ekki byrjað að hella steypunni?
Fyrsti bíllinn sprengdi hosu í sundinu. Þeir eru að laga það núna.
Það er alltaf eitthvað.
Því ferðu ekki bara? Við reddum þessu.
Nei. Ég veit það en ég þarf að kvitta fyrir.
Kvittaðu fyrir núna og ég geymi kvittunina þar til þessu er lokið.
Allt í lagi.
Takk, Bobby.
En þú hringir samt í mig þegar þessu er lokið.
Sjálfsagt mál, stjóri. - Allt í lagi.
...stafli af blöðum hér með fyrirsögnum
en ég get lofað því að það eina sem fólk vill tala um í dag
er þessi Clarke... - Clarke.
...stjörnuflakkandi halastjarnan.
Sagt er að engin halastjarna hafi flogið nær í sögunni
sem þýðir að við munum geta séð hana jafnvel í dagsbirtu.
Það er magnað.
Já.
Þeir fundu þetta fyrirbæri fyrst fyrir nokkrum vikum.
NASA segir að hún hafi birst fyrirvaralaust
frá öðru sólkerfi. Þetta er alveg...
Þú gerðir mér bilt við. Ég heyrði ekki í þér. -Afsakaðu.
Hvað er klukkan? Ég hélt við hefðum sagt klukkan sjö.
Ég hætti fyrr í vinnunni.
Ég get beðið niðri ef þú vilt. - Það er óþarfi.
Ég er búin.
Hve margir kílómetrar?
Átta. - Átta. Gott.
Verður veislan enn á morgun?
Ertu að grínast?
Nathan bauð hálfri götunni.
Hvernig hefur hann það?
Hann hefur það ágætt.
Hvað verður þetta vandræðalegt lengi?
Ég veit það ekki, John. Ég er ekki að reyna að gera það þannig.
Því ef þú ert bara að gera þetta fyrir Nathan...
Ég er ekki að því. - Þá held ég ekki...
Ég er ekki að því.
Allt í lagi.
Ég er bara að gá.
Þetta mun bara krefjast dálítils tíma
og átaks frá okkur báðum.
Við getum þetta, Ali.
Allt í lagi, ég ætla í sturtu.
Ég hringi til Deb og segi honum að koma heim.
Viltu gæta þess að hann þvoi sér um hendurnar fyrir matinn?
Já. - Takk.
Hæ.
Pabbi!
Gott að þú ert kominn heim.
Það finnst mér líka.
Ertu enn hrifinn af teikniborðinu, strákur?
Já, ég teikna mjög vel á því.
Já, ég sé það. Ja hérna.
Mér líkar þessi. Komdu hingað.
Þú ert frábær listamaður, lagsi.
Takk. - Já.
Hvernig gengur skólinn?
Vel. - Er það?
Tala kennararnir þínir um þetta?
Já. Williams sagði að Clarke væri eins og risasnjóbolti gerður úr gasi.
Loftsteinar eru gerðir úr freti. Einmitt. Ég skil.
Nei. Clarke er halastjarna, kjáni, ekki loftsteinn.
Halastjarna. Ég vissi ekki að það væri munur.
Halastjörnur fara hraðar, miklu, miklu hraðar.
Vissirðu að Clarke er úr öðru sólkerfi?
Þess vegna er lítið vitað um hana.
Núna veit ég tvennt.
Hvað?
Að þú og halastjörnur eruð gerð úr freti.
Nei, þú ert það. - Nei, þú ert það!
Nei, þú ert það!
Nei, þú ert það! Komdu hérna.
Hvernig gengur með þetta?
Er þetta betra en sprauturnar?
Miklu betra. - Jæja?
Gott.
Hvað er að, vinur?
Lætur mamma þig fara aftur?
Við mamma þín þurfum að vinna úr nokkrum hlutum.
En sama hvað gerist...
Horfðu á mig, sonur.
Ég verð alltaf faðir þinn, allt í lagi?
Ég fer aldrei frá þér.
Ég elska þig, stráksi.
Vísindamenn halda áfram að rannsaka Clarke,
stjörnuflakkandli halastjörnuna sem fannst fyrir nokkrum vikum.
Ólíkt flestum. halastjörnum og jafnvel loftsteinum,
sem ferðast miklu hægar og eru auðrekjanlegri,
er þessi tiltekna halastjarna ekki samfelld heild
heldur er hún samansafn hundruða grjót-og ísklumpa
sem hafa molnað frá á milljónum ára.
Í raun er brotaslóð Clarke svo löng
að endi hennar nær út fyrir þau mörk sem stjörnufræðingar geta séð.
Í öðrum fréttum, Wall Street...
Jæja, Nathan. Heimanámið.
Dow Jones endaði í yfir 2,5% í dag.
Geturðu hjálpað mér?
Allt í lagi, hvað ertu með?
Brotareikning.
Ég hélt þú værir góður í stærðfræði. - Mér er illa við brotareikning.
Hann er erfiður.
Hann má vera erfiður
því brotareikningur og stærðfræði eru mikilvæg.
Heldurðu að pabbi þinn geti byggt skýjakljúfa án færni í stærðfræði?
Viltu byggja skýjakljúfa eins og ég? - Já.
Komdu. Ég skal hjálpa þér.
Jæja. Svo hvaða tölur deilast í jafna hluta?
Það er þá gestaherbergið.
Flottur sjónauki, lagsi.
Ég sé ekki Clarke.
Kannski sefur hún enn.
Pabbi.
...þróun mála í nótt.
Nú er búist við að sum af stærri brotum Clarke komi inn í gufuhvolf okkar.
Vísindamenn segja að þegar stærstu brotin nálgist sólina
hitni þau og gefi frá sér gasstróka sem breyti stefnu þeirra.
Þeir segja líka að ekkert sé að óttast því brotin muni ekki lenda á jörðinni.
Þau munu brenna upp á himninum á leið sinni í gegnum lofthjúpinn.
En ég þori að veðja að það verður magnað sjónarspil.
Hæ, John! Velkominn aftur, félagi!
Hæ, Ed. Hvernig hefurðu það? - Gott.
Hvernig gengur?
Vel.
Kemurðu yfir á eftir? - Ég sleppi aldrei ókeypis máltíð.
Ég veit það.
Sjáumst á eftir.
Heyrðu.
Við þurfum meiri bjór og vín.
Geturðu farið í búðina fyrir mig? Fólkið kemur eftir um klukkutíma.
Núna? Ég er að fara að kveikja á grillinu.
Ég þarf að undirbúa mig. Fólkið kemur fljótlega.
Allt í lagi.
Þarftu eitthvað fleira á meðan ég er þar? Bara svo ég viti það.
Nei.
Allt í lagi.
Reyndar, kauptu fleiri pylsubrauð.
Og sinnep. Við eigum bara þetta sterka.
Takk.
Wayfield Matur
Jæja, stráksi.
Má ég fá leikfang?
Ef þú ert hlýðinn og flýtir þér.
Hvert eru þær að fara?
Ég veit það ekki.
Sjáðu! Þarna er Clarke
Ansi flott að sjá, ha?
Jæja, drífum okkur.
Nathan, komdu nú.
Gott og vel. Nokkrir Bud Light...
Getum við líka keypt safafernur?
Allt í lagi.
Gott og vel.
Safar.
Hvaða tegund viltu?
Mér þykja þessir góðir.
Einmitt. Svo það eru þessir.
Þetta er hávært, pabbi. Hvað er þetta?
Hlýtur að vera almannaviðvörun.
Þetta er ekki prófun. Svaraðu símtali vegna áríðandi skilaboða.
"Forsetaviðvörun"?
Bandaríkin Heimavarnaráð
Halló?
Þetta er forsetaviðvörun. Þetta er ekki prófun.
John Allan Garrity,
þú hefur verið valinn til brottflutnings í neyðarskýli
ásamt Allison Rose Garrity,
Nathan Beckett Garrity.
Þið megið taka eina tösku. Það eru engar undantekningar.
Vinsamlegast hafðu Allison Rose Garrity,
Nathan Beckett Garrity...
í viðbragðsstöðu til að fá nánari upplýsingar.
Þetta er ekki prófun.
Jæja. Komdu, Nathan, við verðum að fara.
En þú sagðir að ég mætti fá leikfang.
Við kaupum það næst. Komdu.
FORSETAVIÐVÖRUN BÍÐIÐ ÁTEKTA
Alveg rétt. Þetta er gefandi lífsreynsla.
Þarna eru þeir.
Sestu hérna.
Hæ. Hæ.
Hæ.
John. Gott að sjá þig aftur.
Sömuleiðis, Kenny. Hæ, Deb.
Hæ, vinur.
FRÉTT Í FRAMVINDU - FÓLK SAFNAST SAMAN TIL Að HORFA Á CLARKE
Þú kemur rétt mátulega. Eitt af fyrstu brotunum fer að klessa á.
Mun Clarke klessa á?
Aðeins lítið brot. Og hafðu ekki áhyggjur, það lendir í sjónum.
Pabbi, komdu og sestu hjá mér
Já, ég ætla bara aðeins að tala við mömmu þína.
Heyrðu.
Hvar er bjórinn og vínið? - Úti í bíl.
Ég fékk Forsetaviðvörun. Fékkst þú hana líka?
Nei. Þetta er eflaust bara prófun. Geturðu sótt dótið út í bíl?
Nei, Ali. Ég held ekki að þetta sé prófun.
Þeir sögðu fjölskylduna okkar hafa verið valda til að fara í skýli.
No comments yet. Be the first to leave one.