Prvních 200 řádků.
Ixtenco, Mexíkó
Þetta er hörmulegt, Nick, en við komum ekki vegna þess.
Erum við nú að berjast við veðrið?
Íbúarnir segja að fellibylurinn hafi haft andlit.
Fólk getur séð sýnir við áfall.
Það þýðir ekki að þetta sé upphaf að öðrum heims...
Hver ert þú?
Þú vilt ekki koma nálægt þessu.
Í minningu
Horfin en ekki gleymd.
Þökk sé Kenneth Lim og Vihaan Ramamurthy fyrir aðstoð við gerð þessa myndbands.
Í ár hafa margir...
Djö... það er klikkað. Brjálæði.
Jason. - Hvað?
Ekki blóta.
Þetta er síðasti skóladagurinn. Það er í lagi.
Sögulegt.
Fyrir rúmum fimm árum var helmingur lífsins í heiminum,
skólinn okkar meðtalinn, þurrkað út.
En svo fyrir átta mánuðum skiluðu hraustar hetjur okkur heim.
Það var kallað „blibbið“.
Þau okkar sem voru blibbuð burt komu aftur á sama aldri.
En hinir skólafélagarnir höfðu elst um fimm ár.
Já, nú er litli bróðir minn eldri en ég.
Já, það er stærðfræði.
Þótt við hefðum horfið á miðju skólaári
og klárað miðsvetrarprófin,
lét skólinn okkur taka árið upp á nýtt.
Það er ósanngjarnt. Það er ekki réttlátt.
Tígrar, leiðin hefur verið löng, erfið og nokkuð ruglandi.
Þegar þessu ári er að ljúka er tímabært
að hefja nýtt skeið í lífinu.
Og vona að ekkert klikkað gerist aftur því eru Avengers nokkuð til lengur?
Hefur nokkur áætlun?
Ég hef áætlun. Fyrsta, ég sit hjá MJ í fluginu.
Annað, ég kaupi tvíþætt tengi fyrir heyrnartól og við horfum á bíó.
Þriðja. Þegar við förum til Feneyja...
Feneyjar eru frægar fyrir glervörur.
Rétt. - Ég kaupi hálsmen með svartri dalíu
því það er hennar uppáhaldsblóm vegna...
Morðsins. - Einmitt.
Fjórða, í París förum við upp í Eiffel-turninn, ég gef henni menið
svo fimmta, ég segi henni hug minn.
Og sjötta, vonandi segist hún bera sama hug til mín
Gleymdu ekki sjöunda lið. - Sjöunda.
Ekki gera neitt af þessu.
Af hverju ekki?
Af því við verðum piparsveinar í Evrópu.
Ned.
Ég veit kannski ekki margt en ég veit þó
að Evrópubúar dýrka Bandaríkjamenn.
Er það? - Og yfir helmingur þeirra er konur.
Já. En ég er svo hrifinn af MJ.
Hún er frábær og svo fyndin á kaldranalegan hátt.
Stundum horfir hún á mig og mér finnst ég hafa staðið upp of... Þarna er hún.
Ekki segja neitt. - Hvað segið þið, lúðar?
Hlakkið þið til ferðarinnar?
Við vorum að tala um hana. - Og áætlun Peters.
Hefurðu áætlun?
Ég hef enga áætlun.
Hann ætlar að safna teskeiðum á ferðum erlendis.
Eins og amma?
Ég safna ekki teskeiðum, hann gerir það.
Jæja, þetta var rosalega spennandi.
Hollráð fyrir ferðina:
Þið ættuð að hlaða VPN á símann svo ríkisstjórnin finni ykkur ekki.
Snjallt. Við gerum það.
Þetta gekk mjög vel.
Aðstoð fyrir heimilislausa
Þegar ég blibbaði aftur heim
skildi fjölskyldan sem bjó í íbúðinni minni ekkert í því.
Eiginkonan hélt að ég væri hjákona.
Amman hélt að ég væri vofa. Það var algjört rugl.
Takk fyrir að koma og styðja þá sem hafa flosnað upp eftir blibbið.
Og auðvitað þökkum við Köngulóarmanninum okkar.
Takk fyrir að bjóða mér, ungfrú Parker.
Og þakka ykkur fyrir að bjóða mér.
Og takk, Köngulóarmaður.
Hann verður fyrir utan til að taka myndir. Takk fyrir.
Þetta var ótrúlegt. - Frábært.
Ég var svo taugaspenntur.
Ég var dálítið stíf. Ég náði mér ekki á strik.
Nei, þetta var fínt. - Mér fannst þú dálítið stífur.
Mér fannst það líka.
Það gerir ekkert til.
Fékkstu vegabréfið? Litla tannkremstúbu?
Já, ég hef það.
Fyrirgefið að ég tafðist.
Happy! Sæll!
Þú lítur vel út. - Takk. Sömuleiðis.
Takk. Er kjóllinn nýr?
Já, hann er nýr.
Skeggið er nýtt. - Það er blibb-skeggið.
Því það óx í blibbinu.
Blibb-skegg.
Ég skil.
Sleppa?
Ég tafðist af því þetta týndist á skrifstofunni.
Trúið þið því? Það er risastórt.
Ekki upphæðin heldur umfangið.
Upphæðin er líka vegleg. Þeir eru örlátir.
Pepper Potts baðst afsökunar á að mæta ekki.
Ég fer að kynda undir grænmetisréttinum.
Köngulóarmaður, heilsaðu fólkinu.
Geri það.
Hvað var þetta?
Viðvörun: Nick Fury hringir í þig.
Hringir Nick Fury í mig? Af hverju?
Hann hefur líklega hetjuverkefni. Þú ert ofurhetja.
Hann hringir í ofurhetjur.
Ef það er svo mikilvægt myndi hann hringja í annan en mig.
Greinilega ekki.
Leyninúmer. Það er hann. - Ég vil ekki tala við Nick Fury.
Svaraðu. - Af hverju?
Annars þarf ég að tala við hann. Ég vil það ekki.
Af hverju viltu ekki tala við hann?
Ég er hræddur. Svaraðu bara.
Léstu Nick Fury fá símsvarann? - Já.
Það gerir maður ekki við hann. - Heyrirðu þetta?
Það er kallað á mig. Ég verð að fara.
Þú verður að tala við hann. - Ég geri það. Ég lofa því.
Þú hunsar ekki Nick Fury.
Ég lofa að ég hringi í hann.
Eftir ferðalagið.
Nei, hann hunsar þig ekki.
Eina spurningu í einu.
Ert þú orðinn aðalmaður Avengers?
Nei, ég er það ekki.
Hvað gerirðu ef geimverurnar koma aftur?
Hefur nokkur spurningu um hverfið?
Ég er frá Queens-fréttum. Hvernig er að taka við af Tony Stark?
Það fara ekki allir í skóna hans.
Nú fer ég. Þakka ykkur fyrir komuna.
ÓSIGRANDI
Óþekktur
Ertu svangur?
Fyrirgefðu.
Ég hélt að þú fyndir fyrir þessu með Peter-kitlinu.
Ekki byrja að kalla það Peter-kitl.
Hvað er að? Geturðu forðast kúlur en ekki banana?
Ég þarf að fara í þetta frí. Ég þarf að fá hvíld.
Þú átt það skilið.
Veistu hvað?
Þú ættir að pakka búningnum til vonar og vara.
Ég finn fyrir kitli um það.
Viltu hætta að tala um kitlur.
Nei.
Járnkönguló að hlaða Ekki aftengja
Nei. Ég tek hann ekki.
Viltu fyrstu vaktina eða næstu? Mér er sama.
Láttu mig fá þá þriðju. Ég tók róandi.
Ég get ekki passað krakkana einn.
Parker. Þetta kallast flugvél.
Það er eins og strætó
nema þú flýgur yfir fátækrahverfi í stað þess að keyra um þau.
Fröken?
Hann blibbaði svo tæknilega er hann 16 ára, ekki 21 árs.
Ég tek þetta.
Hún lýgur. Ég þekki hana ekki.
Dæmigert fyrir MJ.
Vissirðu að Brad kæmi?
Þetta er svo skrýtið.
Hann var lítil væluskjóða, alltaf með blóðnasir
en síðan við blibbuðum til baka er hann vöðvastæltur og indæll.
Allar stelpurnar eru á eftir honum. - Ekki allar.
Jú, þær eru allar á eftir honum.
En snúum okkur að mikilvægari málum.
Þetta er níu tíma flug. Við getum spilað tölvuleik allan tímann.
Hjálpaðu mér að setjast hjá MJ.
Í alvöru? - Já, í alvöru.
Hvað með áætlunina? Bandarískir piparsveinar í Evrópu.
Það er áætlun fyrir þig einan. Þetta er mín áætlun.
Gerðu það.
Halló.
Það situr gömul kona með rosalega mikið ilmvatn fyrir framan okkur
og Peter er að fá ofnæmiskast.
Betty, ef þú gætir skipt um sæti við hann...
Hefur hann ofnæmi fyrir ilmvatni?
Já. Hann tárast og getur ekki...
Hefur Peter ilmvatnsofnæmi?
Ég veit af reynslu að það er ekkert grín.
Ég er að fá útbrot.
Stattu upp, MJ.
Ned, sestu í hennar sæti. MJ, þú sest í mitt sæti.
Peter, komum þér burt.
Zach og Sebastian, þið setjist í sæti Neds og Peters.
Takk fyrir að láta mig vita af þessu.
Öryggi ykkar er á mína ábyrgð og Dells, en hann...
Ég sé um þetta. Komdu, Peter.
Ég hef litla blöðru svo ég sest við ganginn.
Viltu spila „Beast Slayer“? - Nei.
Hefurðu spilað einhverja tölvuleiki? - Nei.
Sagði ég þér að konan mín þóttist hafa blibbað?
Reyndar fór hún með manni í gönguhópnum okkar.
Við héldum falska útför fyrir hana eða útförin var ekta
því ég hélt að hún væri dáin. Viltu sjá myndbandið?
Ég hef tvíþætt tengi ef þú vilt horfa á bíómynd.
Ef hún er niðurdrepandi. Eða sprenghlægileg.
Þú ert með tvíþætt tengi. Við getum horft saman.
Sæl, dömur og herrar. Þetta er flugstjórinn.
No comments yet. Be the first to leave one.