Prvních 200 řádků.
ÞÝSKALAND, GERVIHNATTASTÖÐ
Já, stjóri, ég er með gervihnattakóðana.
Nei, ég skildi þá ekki eftir í bílnum. Ég er ekki heimskur.
Nei, þeir eru hérna.
Ja. Ja, ég er að setja þá inn núna.
Já, ég er að þræla mér út. Bið að heilsa frúnni.
Ó, fór hún frá þér. Það var leitt. Ókei, bless.
Litli hvutti.
Hvað ertu að gera hér?
Það er svo kalt.
Komdu inn og hlýjaðu þér hjá Friðriki.
Komdu hingað. Svona.
Halló. Halló.
Rex?
Ég fann félaga handa þér.
Heilsaðu vini þínum. Halló.” ”
Ooo, ég er nýi vinurinn þinn. ” Við erum vinir.“
Rex!
Hættu! Þetta er bara hvolpur.
Nú ertu orðinn reiður.
Þegiðu! Hann heyrir í þér!
Lokaðu trantinum.
Nei! Rex! Ekki láta svona.
Rex. Rex, hvað er að þér?
Komdu. Komdu. Út fyrir. Nei!
Hvaða dónaskapur er þetta? Sittu! Sittu! Sestu niður!
Það er kominn gestur. Þú verður úti þangað til þú lærir að haga þér vel!
Æ, nei. Læst?
Af hverju?
HERNAÐARLEYNDARMÁL Gervihnattakóðar
Mjá.
Tilgreindu erindið.
Fulltrúi einn tuttugu og sjö rýfur samskiptahlé.
Ég fann Kittý Galore!
Ég endurtek: Ég fann Kittý Galore!
HUNDAR OG KETTIR HEFND KITTÝ GALORE
SAN FRANCISCO, KALIFORNÍU
Við höfum öll séð auglýsingarnar hans...
...en í dag virðist geggjaði Carlito bera nafn með rentu.
Hann fullyrðir að hann bjóði brjálæðislegt verð og nú virðist hann sjálfur brjálaður.
Hér ríkir spenna meðan við bíðum eftir að bundinn verði endi á þessa stöðu.
Svenni, komdu hingað!
Kyrr, Skuggi.
Hvernig er staðan, stjóri?
Maðurinn er snarbrjálaður.
Fjórir gíslar í húsinu.
Allir saman bílasalar.
Ég myndi ekki treysta þessum.
Ef vitleysingurinn skiptir um stöð með þessu...
...sprengir hann allt planið í loft upp.
Hmm, nú er bara um eitt að ræða.
Ég hef þig. Nú tek ég þig.
Ó, já.
- Ég hika ekki við það!! - Ég get bara...
Ef þið komið nær skal það verða ykkar síðasta!
Nei. Skuggi.
Skuggi!
Komdu þér burt! Burt með þig!
- Burt með þig! - Forðum okkur, komið þið!
Komdu þér burt! Skuggi!
Skuggi, farðu burt!
Viljið þið hasar? Ég skal sýna ykkur hasar!
Ég þarf bara að þrýsta á hnappinn hérna og...
Vaaaáá!
Óh, já!
Skuggi! Nei!
- Nú springur hún! - Haldið fólkinu frá!
Farið í skjól! Ég endurtek! Farið í skjól!
Hó, hó, hó! Bíddu nú hægur.
Viltu ráða þennan gaur? Hann sprengdi upp bílasölu!
Bílasölu með notaða bíla. Hann er kannski ekki sérlega góð lögga.
En hann hefur hæfileika til að vera góður njósnari.
Hann hræðist ekkert, geltir andspænis hættum...
...og er þjálfaður í bardaga í návígi.
Og það eina sem hann hatar meira en fyrirskipanir...
...eru kettir.
Já, kattahatur er jákvætt.
Og einmitt það sem okkur vantar til að ná Kittý Galore.
Þá það. En ég veit ekki hver er svo heimskur að vilja vinna með honum.
Jæja. Ég gelti beint framan í hann.
Voff.
LÖGREGLAN Í SAN FRANCISCO
- Leystur frá störfum? - Hundurinn er gersamlega óhæfur.
Við höfum sent hann í hlýðniskóla, hvað, þrisvar sinnum?
Og samt hlýðir hann ekki.
Ekki láta kerfið taka við honum.
Hefur dvalið í byrgjum meira og minna alla ævi. Hann hefur aldrei átt heimili.
Veistu hvað, ég tek hann að mér.
Því miður, Svenni. Hann er eign ríkisins.
Auk þess ertu nýbúinn að eignast barn.
Þú getur ekki bætt þessum vanda á þig. Láttu hann bara fara.
Láttu hann fara.
Neyddu mig ekki til að gera þetta.
Glæsilegt, Skuggi.
ÓLAR
Mér þykir þetta leitt.
Ég veit þú reyndir.
Þú gerir það alltaf. En stundum gengurðu of langt.
Eins og þessi lögguvinna.
Stundum er nauðsynlegt að vinna saman.
Það skiptir ekki öllu að vera bestur.
Skuggi. Fyrirgefðu, vinur.
Ég skal gera allt sem ég get til að ná þér héðan út.
En vertu þægur þangað til.
Þú ert bestur.
Þetta er ekki svo slæmt.
Hvernig gengur, gólf? Hvað er títt, rimlar?
Hvað segirðu, dallur?
Hafið þið saknað mín? Nú er ég kominn aftur.
Aftur í gamla byrgið.
Heyrðu! Hva...? Hvað er...?
Allt í lagi, mér brá ekkert.
Halló? Er nokkur heima?
MARK FUNDIÐ
Halló?
Hver ert þú? Hvenær var sett lyfta hérna?
Ég heiti Bússi og er njósnari. Gegn betri vitund...
...býð ég þér að gerast nýliði í leynilegum samtökum...
...sem berjast gegn útbreiðslu róttækrar kattahreyfingar.
Allt í lagi, á þetta að vera einhver brandari?
Þetta er enginn brandari, Skuggi.
- Hvernig veistu hvað ég heiti? - Ég kom upp úr gólfinu.
Við skulum reikna með að ég sé nógu klár til að vita hvað þú heitir.
Meðan þú og löggufélagar þínir eltist við skottin á ykkur...
...hefur úrvalsliði hunda verið falið það göfuga starf...
...að vernda mannkynið.
Við viljum fá þig til liðs við okkur.
Þetta er einstakt tilboð, Skuggi. Ég legg til að þú þiggir það.
Það er freistandi, en ég get ekki tekið öllum tilboðum sem koma upp úr gólfinu.
Þú hefur verið innilokaður hérna hálfa ævina.
Það eru allar líkur á að þú verðir látinn dúsa hér það sem eftir er.
En þitt er valið.
Þú getur barist hér við kakkalakkana um fóðrið þitt...
...eða komið með mér að berjast við ketti.
Berjast við ketti? Af hverju sagðirðu það ekki?
Farðu frá, Snati, þessi hundur ætlar á veiðar!
Ó, Guð!
Ég var að ryksuga, reyndu að fara ekki úr hárum.
Vá, við erum á rosalegum hraða.
Þetta er gaman! Mér finnst rosalega gaman. Ég hef það fínt.
- Ertu alveg viss um það, hetja? - Já, þetta er gott.
Nei, ekki gott!
Ég þarf að æla.
Þetta er fulltrúi 3293. Ég er með pakkann.
HUNDAHEIMUR HÖFUÐSTÖÐVAR
Passaðu þig nú. Nýliðum getur orðið óglatt eftir fyrstu ferðina.
Er allt í lagi með þig, grænjaxl?
Já, allt í lagi. Ég hef það fínt.
Ég ætla bara að liggja hér þangað til herbergið hættir að snúast.
Komdu, ofurhetja, gamanið er rétt að byrja.
Já, ég held að við séum ekki alveg sammála um hvað er gaman.
Ah, bíddu bara.
Vertu nú viðbúinn.
Nú færðu að sjá nokkuð sem engir menn og afar fáir hundar fá að sjá.
Sæll, Bússi fulltrúi. Virkja loppuskanna núna.
Ljúft!
Þetta er eins og hundahótel í Vegas.
Í dag verður fjallað um áreitni á vinnustað.
Ekki einu sinni Doberman líðst að klípa tík.
Velkominn í höfuðstöðvarnar, hér er lífið og sálin í starfsemi okkar.
- Mikki, eigum við að fá okkur hádegisbita? - Nei, Kalli, ég kann ekki við þig.
Við erum mjóa, loðna línan á milli manna og algerrar upplausnar.
Reyndu að taka vel eftir.
Sjáið þið þetta, ég er á hjólabretti, ég er á hjólabretti!
Allir í okkar úrvalsliði vinna og þjálfa allan sólarhringinn...
...til að berjast við óvini okkar bæði erlenda og innlenda.
Hér er orðatiltækið besti vinur ” mannsins“ tekið mjög alvarlega.
- Allt undir? - Því ekki?
- Blessaður, Bússi. - Sæll, Sámur.
Af hverju gerum við allt þetta?
Til að tryggja að veröldin breytist aldrei í kattaveldi.
Sælar, dömur!
Leitt að þið farið, gaman að sjá á eftir ykkur.
Hættu að slefa svona. Komdu, ég vil kynna þig fyrir fleirum.
Geturðu ekki kynnt mig fyrir þeim?
Bíddu eftir mér.
Rjúkandi hundur: Heitt, heitt, brennandi hundur á ferð.
LEYNIAÐGERÐIR
Þrír, tveir, einn. Láta vaða.
Í mark.
Passaðu loppurnar hérna inni. Ekki snerta neitt.
Hvernig hefurðu það, félagi?
Mjá. Mjá. Mjá-mjá. Mjá-mjá-mjá.
Hvers konar köttur er þetta? Burt með þig!
Mjá. Æ, ég gleymdi þessu. Þetta er Kattamatron 3000.
Það þjálfar mann í að hugsa eins og óvinurinn. Bókstaflega.
Vhúff! Mér sýnist sumir hafa verið að eltast við ljóta spýtu.
Þetta er Pési, tæknisérfræðingur og yfirmaður leyniaðgerða.
- Sæll. - Sæll, sjálfur.
Heyrðu, Pési, ertu með eitthvað sem virkar í raun og veru?
Ha-ha. Komið með mér.
Af stað.
Bússi, nýja ólin þín er með nýjasta hráskinna-7 samskiptapakkanum
Lásaopnara, helíum-neón leysi...
...gripkrókaakkeri og munnúða með lifrarilmi.
Og þetta er ólin þín.
Ljúft! Hvað gerir hún?
Óh, þú getur fest nafnspjaldið á hana.
Bússi, mér sýnist þú hafa grennst.
Fyrirgefðu, ég heiti Skuggi og ég er alltaf svona flottur.
No comments yet. Be the first to leave one.