Mulan

Mulan

Stáhnout Icelandic titulky

Informace o verzi

Mulan 2020 WEB-DL DSNP
Mulan 2020 720p/1080p DSNP WEB-DL DDP5 1 Atmos H 264
Mulan 2020 720p DSNP WEB-DL XviD AC3-XVID
Mulan 2020 DSNP WEB-DL XviD AC3/MP3-XVID
Mulan 2020 DSNP WEB-DL x264-ION10
Mulan 2020 1080p DSNP WEBRip x264/x265-RARBG
Mulan 2020 720p/1080p DSNP WEB-DL AAC2 0 H 264
Mulan 2020 DSNP WEB-DL SUBPACK-FGT
Mulan 2020 HDR 720p/1080p/2160p DSNP WEB H264/H265 Atmos
Mulan 2020 1080p/2160p DSNP WEB-DL x265 10bit HDR10Plus DDP5 1 Atmos DV MP4
Komentář od ChristopherCavco
Íslenska | Disney | Official Subtitle | Works with all Disney release versions. Not DVD or BluRay.

Tagy

web
720p
720
1080
HD
Web-DL
web-dl
WEB-DL
XviD
AC3
x264
x265
webrip
BRip
Zveřejněno: 2021-07-02
Stažení: 19
Pro sluchově postižené: No

Náhled titulků v jazyce Icelandic

Prvních 200 řádků.

Til eru margar sögur um fræknu stríðshetjuna Mulan.

En, forfeður, þetta er mín saga.

Hér er hún.

Lítil spíra, alveg græn...

sem veit ekki af hnífsblaðinu.

Ef þið ættuð slíka dóttur,

með chi, sjálfa óþrjótandi lífsorkuna,

sjáanlega í hverri hreyfingu,

gætuð þið sagt henni að aðeins sonur mætti beita chi-inu?

Að slík dóttir gæti boðað skömm, vansæmd og útlegð?

Forfeður, það gat ég ekki.

Komdu hingað.

Þetta er sú síðasta.

Varlega.

Mulan. Gleymdu hænunni.

Hún kemur aftur.

Nei!

Segðu mér að þetta sé ekki verk systur þinnar.

Mulan, hafðu hemil á þér.

Mulan! Hlustaðu á mig.

Nei!

Mulan, hvað gerðist þegar þú féllst fram af þakinu?

Þú varst eins og fugl.

Ekki tapa þér. Það er kónguló í hárinu á þér.

Þú veist að ég er hrædd við kóngulær.

Ertu nokkuð að plata, Mulan?

Engar áhyggjur. Ef þú situr bara grafkyrr...

skal ég kremja hana.

Ég segi þetta vegna þess að ég reyni að vernda Mulan.

Mulan er ung og hún er enn að læra að sýna sjálfsstjórn.

Þú afsakar hana.

Þú gleymir því að Mulan er dóttir, ekki sonur.

Dóttir færir okkur sæmd með hjónabandi.

Hvaða maður sem er yrði lánsamur að kvænast annarri dætra okkar.

Líka Mulan.

Hver vill kvænast stúlku sem stekkur á milli húsþaka og eltir hænur?

Xiu er aldrei til vandræða.

Hjúskaparmiðlarinn finnur góðan eiginmann handa henni.

En ég hef áhyggjur af Mulan.

Hún verður kölluð norn.

Þú verður að eiga orð við hana.

Veistu hvers vegna það er fönix við inngang helgiskrínsins?

Hún er sendiboði forfeðra okkar.

En ég braut hana.

Sumir segja að fönix eyðist í eldi

en rísi aftur úr öskunni.

Hún ætti að þola vængbrot.

Chi-ið er öflugt í þér, Mulan.

En chi er fyrir stríðsmenn...

ekki dætur.

Bráðum verður þú ung kona

og það er kominn tími til þess

að þú felir náðargjöf þína.

Að þú þaggir niður í þeirri rödd.

Ég segi það til að vernda þig.

Það er mín skylda.

Það er þín skylda að vera fjölskyldunni til sóma.

Heldurðu að þú getir það?

Á SILKIVEGINUM Í NORÐVESTUR-KÍNA

Róranar? Það getur ekki verið.

Lokið hliðunum!

Drepið leiðtogann!

Þú. Þú dugar.

KEISARABORGIN Í MIÐ-KÍNA

Yðar hátign...

sex setuliðsdeildir í norðri, á Silkiveginum,

féllu í samstilltum árásum.

Öll viðskipti hafa raskast.

Ef við bregðumst ekki við þessu gæti það endað með hruni ríkisins.

Hvað með þegna mína?

Þeim var slátrað.

Þessi hermaður er eini eftirlifandinn.

Ég óttast frekari árásir.

Hver ber ábyrgð á þessu?

Róranar, yðar hátign.

Leiðtogi þeirra kallar sig Böri Khan.

Ég drap Böri Khan.

Þetta er sonur hans.

Hann sameinaði ættbálkana og endurreisti her Rórana.

Ef ég má, yðar göfgi.

Þú mátt tala.

Böri Khan berst við hlið konu.

Chi-ið hennar er ólýsanlegt.

Það er enginn staður fyrir nornir í þessu ríki.

Það er bannað að nota chi til skaðlegra verka.

En það er máttur hennar sem leiðir her Rórana til sigurs.

Hún þjálfaði sveit skuggahermanna til að aðstoða Böri Khan.

Við óttumst ekki svartagaldur.

Við rústum þessum her Rórana og norn þeirra.

Svo hljóðar tilskipun mín:

Við söfnum í mikinn her.

Hver fjölskylda gefur einn karlmann.

Við verndum ástkæra þjóð okkar

og gjörsigrum þessa morðingja.

Sendið veldisherinn af stað.

Keisaraveldinu verður ekki ógnað.

Hefurðu fréttir að færa mér?

Keisarinn sendir herlið til að verja Silkiveginn.

Gott.

Við leggjum hvert setulið að velli þar til veldisherinn er knésettur.

Og þá...

liggur Keisaraborgin vel við höggi.

Þá get ég drepið keisarann.

Þú komst að góðum notum, norn.

Ekki norn.

Stríðskappi.

Ég gæti rifið þig í sundur áður en þú deplar auga.

En þú gerir það ekki.

Mundu hvað þú þráir.

Stað, þar sem kraftar þínir verða ekki taldir illir.

Stað, þar sem þér er tekið eins og þú ert.

Þú færð ekki það sem þú þráir án mín.

Þegar ég fann þig ráfandi aleina um auðnina

þá varstu útlagi.

Fyrirlitin hundstík.

Þegar ég sit í hásætinu eignast sú hundstík heimili.

Við ljúkum því sem við hófum.

Þú sérð til þess að ekkert og enginn standi í vegi fyrir mér.

Við Svartvindur sáum tvær kanínur hlaupa hlið við hlið.

Mér sýndist þær vera af sitthvoru kyni.

Maður getur ekki verið viss þegar þær hlaupa svona hratt.

Ég ætla að reyna að finna þær aftur á morgun.

Kannski verða þær þarna.

Við færum frábærar fréttir.

Hjúskaparmiðlarinn fann hentugan maka handa þér.

Já, Mulan, þetta er ákveðið.

Komdu og sestu.

Þetta er fjölskyldunni fyrir bestu.

Já.

Fyrir bestu.

Ég verð okkur öllum til sóma.

Það er blessun að vera í návist svona heillandi kvenna.

Þetta verður án efa örlagaríkur dagur fyrir Hua...

Skiptir ekki máli. Við megum ekki vera seinar.

Ég er glorhungruð.

Ég sagði að þú mættir ekki borða. Það skemmir förðunina.

Ofsafenginn vetrarbylur skemmir ekki þessa förðun.

Xiu, líttu framan í mig. Hvernig líður mér?

Ég hef ekki glóru.

Nákvæmlega.

Svona er ég döpur á svip og svona er ég forvitin.

Nú er ég ringluð.

Þögul.

Yfirveguð.

Þokkafull.

Fáguð.

Örugg.

Kurteis.

Þetta eru kostirnir...

sem við finnum hjá góðri eiginkonu.

Þetta eru kostirnir...

sem við finnum hjá Mulan.

Þegar eiginkonan þjónar eiginmanni sínum

verður hún að vera hljóðlát.

Hún verður að vera...

ósýnileg.

Hún verður að vera...

Er eitthvað að?

Nei, frú Hjúskaparmiðlari. Þakka þér fyrir.

Það er venjan að ketillinn...

sé geymdur á miðju borðinu.

Já, ég skil.

En ég held að það sé betra að hafa ketilinn þarna.

Færðu ketilinn.

Stúlka!

Mikil er vansæmd Hua-fjölskyldunnar.

Þeim hefur ekki tekist að ala upp góða dóttur.

Þegnar!

Við höfum mátt þola árásir innrásarliðs úr norðri.

Ríkið okkar á í stríði.

Samkvæmt tilskipun hans hátignar, Himnasonarins,

verður hver fjölskylda að leggja til einn karlmann í herinn.

Einn karlmann frá hverju heimili.

Wáng-fjölskyldan.

Chin-fjölskyldan.

Dù-fjölskyldan.

Hua-fjölskyldan.

Ég heiti Hua Zhou.

Ég barðist með veldishernum í síðasta stríði gegn innrásarliðinu.

Áttu engan son sem getur barist?

Mér auðnaðist að eignast tvær dætur.

Ég mun berjast.

Nei, þetta eykur aðeins á niðurlægingu hans.

Á ég að hjálpa þér?

Nei.

Liu-fjölskyldan.

Wei-fjölskyldan.

Þú ert stríðshetja.

Þú hefur þegar fært svo miklar fórnir.

Ertu að leggja til...

að fjölskyldan okkar hlýði ekki tilskipun keisarans?

Hvernig geturðu barist...?

Ég er faðirinn.

Það er skylda mín að vera fjölskyldunni til sóma í bardaga.

Þú ert dóttirin!

Sættu þig við þína stöðu.

Við verðum að vera sterkar.

Í þetta sinn á hann ekki afturkvæmt.

Þetta er svo fallegt.

Fallegt verkfæri...

Komentáře

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left