Jexi

Jexi

Stáhnout Icelandic titulky

Informace o verzi

Jexi 2019 ISL 1080p BluRay x264 AC3-Skari11
Komentář od Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

Tagy

BluRay
x264
AC3
1080
Zveřejněno: 2020-01-28
Stažení: 39
Pro sluchově postižené: No

Náhled titulků v jazyce Icelandic

Prvních 200 řádků.

Við ættum að planta blómum.

Jæja? Hvernig blóm hafðirðu í huga?

Ég veit ekki. Gardeníur.

Eitthvað slíkt sem þolir vel sólskin.

Gardeníur? Eru þær þessar purpuralitu... -Mamma, mér leiðist.

...með kraganum? -Mamma, mér leiðist.

Láttu hann bara fá símann

Láta hann fá símann?

Já, þaggaðu niður í honum og láttu hann fá símann.

Já.

Eiga þau til bláa túlípana? Er það ekki vinsælt?

Nei, þau eiga purpurarauða. Því ættu þau að eiga bláa?

Þú ert heldur aldrei heima. -Ég fer í fjölskyldumeðferðartímana.

Hvernig geturðu sagt þetta? -Þú ferð aldrei neitt.

Ég fer í fjölskyldu...

Við erum að rífast fyrir framan Phil. -Augljóslega.

Við rífumst stöðugt fyrir framan strákinn.

Hérna, vinur. Skemmtu þér.

Öll skiptin sem þú leyfðir mér að öskra á hann fyrir framan þig?

Hvað á ég að gera?

RÚNTANDI SJÁLFAKANDI ÖKUTÆKI

SKRAFSKJÓÐA

SKRAFSKJÓÐA

Sæl, öll.

Hvar er listadeildin mín?

Réttið upp hendur. Réttið upp hendur.

Jæja. Þið eigið að semja lista

sem rústa internetinu hvern einasta dag.

Við höfum ekki fengið veirudreifingu síðan í andskotans gær.

Gærdagurinn var ekki fyrir svo mörgum dögum.

Enga stæla við mig, brói.

Við heitum Skrafskjóða, ekki Enginn-Smellir-Á-Okkur-Skjóða.

Jæja, listar. Fallega asíska stúlka, hvað ertu með?

Takk. Ég vinn að 1 2 ástæðum fyrir því að bollakökur eru búnar að vera.

Mér líkar. Mér líka-líkar.

Það er smellavænt.

Þú. Fangelsisvarir. Hvað ertu með?

Er það ég?

Ég ætlaði að gera lista yfir ketti sem líkjast Ryan Gosling.

Já, fjandinn, gaur. Eg elska ketti.

Og ég elska kattalista.

Þetta er það sem ég er að tala um.

Vel á minnst, eru til kettir sem eru líkir Ryan Gosling?

Horfi maður nógu lengi eru þeir það allir.

Elska það. Hvað ertu með?

Tíu merki um að þú sért dauðvona.

Skíthællinn þinn.

Hvað ertu að reyna að gera mér, brói?

Þetta gerir mig dapran.

Veistu hvað?

Ég þarf 20 veirulista fyrir lok dagsins.

Annars ertu rekinn. Skilið? -Hvað þá?

Eins og hinn merki Shia LaBeouf segir: "Gerðu það!''

Já. -Já.

Spilið mig út.

Spilið mig út.

Og hærra.

Svarti gaur, bassa.

Einn, tveir, einn, tveir, þrír, fjór.

Búið.

Ekkert að þakka.

Tuttugu lista fyrir lok dagsins? Eg get það ekki.

Ég er með tíu aukalista ef þú vilt þá.

Er þér alvara?

Já. Það er ekkert mál. Ég sendi þá núna.

Það er fallegt af þér. Hvað heitirðu?

Ég er Phil.

Málið er bara, ég hef setið við hliðina á þér í þrjú ár. Svo þetta er...

Phil, þú ert hetjan mín.

Ég má ekki missa starfið núna. Ég er á kafi í námslánaskuldum.

Ég líka.

Hvar varstu í skóla?

UC Davis.

Í alvöru? -Já.

Tók fjölmiðlafræði sem aðalgrein og sem núna lista um ketti á netinu.

Það er rosalega sorglegt.

Hvernig endaðirðu hér?

Ég vildi vera einn af þeim.

Alvörufréttafólkinu? -Já.

Mig hefur langað að verða blaðamaður nánast allt mitt líf.

En Kai setti mig í listana svo ég sem listana.

Einmitt, svo þú getur ekki orðið alvörublaðamaður.

En veistu hvað þú getur gert?

Þú getur komið í sparkbolta með okkur í dag.

Hópur af okkur bjálfunum er í fáránlegri sparkboltadeild

ef þú vilt spila eftir vinnu.

Ég geri eiginlega ekki slíkt.

Og eftir leikinn förum við á skallann.

Já, leyfðu mér að skoða dagatalið mitt.

Engir Viðburðir

Svo, já...

Nú. Nei, reyndar. Ég er...

Ég er með viðburð svo...

Engar áhyggjur. Það er í lagi. Skemmtu þér á viðburðinum þínum í dag.

Ég geri það því þetta verður frábært.

Siri, opnaðu Netflix.

Siri, opnaðu Facebook.

Ég hef ekki póstað neinu síðan í hádeginu.

Jæja, færum þeim það sem þau þrá.

Ég verð að laga þessa dálítið til.

Bæta við síu.

Litaleiðrétta.

Veistu, ég verð að bæta við risastóru tungli.

Þarna kom það.

Senda.

Vá. Ég er svo þakklátur fyrir stórkostlegu borgina mína,

stórkostlega starfið mitt og alla stórkostlegu vini mína.

Almáttugur.

Guði sé lof. Það er í lagi með þig.

Já, það er líka í lagi með mig. Takk.

Ó, skrambinn.

Já, fyrirgefðu. Ertu ómeidd?

Já,ég er ósködduð. En það sem meira máli skiptir, hvað um símann þinn?

Já. Nei, það er dálítil rispa sem mun pottþétt ergja mig.

Þú varst að grínast. Einmitt.

Já. Augljóslega. Ég er fífl. Mér þykir fyrir þessu.

Þetta er allt í góðu.

Hvernig er hjólið þitt?

Ég get borgað fyrir skemmdir eða svoleiðis.

Það er í lagi með það. Það á að vera gamaldags.

Ég get líklega selt það dýrara núna.

Þetta er búðin þín. -Já.

Það er æðislegt. Það er svalt.

Ég er Cate, vel á minnst. -Sæl, Cate. Eg er Phil.

Nei. Maður segir það ekki svona. Það er bara Phil, svo...

Ég sagði það undarlega.

Gaman að hitta þig, Phil. -Einmitt.

Ef þú þarft hjól á okurverði eða viðgerðir...

er ég stúlkan þín.

Gerirðu líka við?

Ja hérna. Það er ótrúlegt. Ég kann ekki einu sinni að pumpa í dekk.

Ó, þér er alvara.

Já, það er vandræðalegt, er það ekki?

Jú, það er mjög vandræðalegt.

Ég veit ekki af hverju ég sagði það. Eg bara eiginlega...

Það er allt í lagi. Margt fólk kann ekki að pumpa í dekkin sín.

Í alvöru? -Nei.

Alls ekki. -Já.

Einmitt. Allt í lagi.

Allt í lagi.

Ég ætla að koma mér héðan áður en ég verð mér meira til skammar.

Það var gaman að hitta þig, Cate.

Það var gaman að hitta þig, Phil.

Og það gleður mig að síminn þinn er í lagi.

Já, hann er í fínu lagi.

Skrambinn.

Já, ég held að við munum ekki geta gert við símann þinn.

Af hverju ekki?

Hann er í þremur aðskildum pörtum. Sjáðu.

Þetta dót hérna. Það...

Ég held að þetta hafi ekki verið hluti af símanum.

Ég held að þetta sé úr úri.

Málið er bara að ég og síminn höfum lent saman í ýmsu.

Mikið af snöppum, mikið af tístum.

Ég tók í alvöru sjálfu

með engum öðrum en David Boreanaz úr Bones með þessum síma.

Trúirðu því?

Ég veit ekki hver í andskotanum það er.

Ég mun sakna þín, litli vinur.

Ég sé hipsteragaura eins og þig koma hingað á hverjum degi

vælandi um hvernig síminn þeirra dó og að þeir þurfi nýjan síma.

Þeir eru eins og krakkhausar.

Já. Þeir eru með brjálæðissvip og klóra sér um allt.

Og þeir seiga: "Ég þarf nýjan síma, maður.

Ég sýg á þér böllinn fyrir nýjan síma.''

Og ég segi : ''Drullusokkur, þú þarft ekki nýjan síma.

Þú þarft að fara í meðferð.''

Ég er ekki krakkhaus.

Þú ert það ekki. Þú ert verri en krakkhaus.

Því krakkhausinn stendur upp úr sófanum endrum og sinnum

til að útvega sér meira krakk.

Krakkhaus fær ferskt loft.

Krakkhaus segir halló við alla krakkhausavini sína.

Krakkhaus fær hreyfingu.

En ekki þú.

Þú situr bara öllum stundum starandi á litla, svarta kassann.

Tottar pípuna eins og lítil tík.

Þú vilt samt nýjan síma, er það ekki?

Jú, takk.

Krakkhaus.

Að sjá þig. Fagra, fallega barnið mitt.

Ferski ilmurinn þinn.

Hamingjan góða.

Þakkir til allra litlu kínversku barnanna

fyrir að búa til svona fullkominn síma.

Halló, ég heiti Jexi. Og ég er hér til að gera líf þitt betra.

Líttu á. Þetta er svalt.

Byrjum þá. -Allt í lagi.

Samþykkirðu nýja notandasamninginn okkar? -Já.

Viltu lesa hann fyrst? -Nei, það er óþarfi.

Auli. -Ha?

Get ég fengið nafnið þitt, takk?

Phil. Phil Thompson.

Ánægjulegt að hitta þig, Phil. -Ánægjulegt að hitta þig.

Ég sé að upplýsingar þínar hafa verið vistaðar í skýinu.

Viltu að ég yfirfæri öll gögnin úr gamla símanum þínum í þennan?

Já, það hljómar vel.

Ég þarf aðgangsorðin að tölvupósts- reikningum þínum, samfélagsmiðlareikningum

bankareikningum þínum, greiðslukortareikningum þínum

og Cinnabon Rewards reikningnum.

Komentáře

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left