If Beale Street Could Talk

If Beale Street Could Talk

Stáhnout Icelandic titulky

Informace o verzi

If Beale Street Could Talk Isltexti(2018)1080p BDRip - Skari11
Komentář od Skari11
Should work for all BluRay releases // Ætti að virka fyrir allar BluRay útgáfur

Tagy

bdrip
bdr
1080
BDR
Zveřejněno: 2019-06-24
Stažení: 50
Pro sluchově postižené: No

Náhled titulků v jazyce Icelandic

Prvních 200 řádků.

"Beale-stræti er stræti í New Orleans,

þar sem faðir minn, þar sem Louis Armstrong og djassinn fæddust.

Sérhver svört manneskja fædd í Bandaríkjunum fæddist á Beale-stræti,

fæddist í svörtu hverfi í einhverri bandarískri borg,

hvort sem var Jackson í Mississippi eða Harlem í New York.

Beale-stræti er arfleifð okkar.

Þessi saga fæst við ómöguleikann og möguleikann,

hina algjöru nauðsyn, að tjá þessa arfleifð.

Beale-stræti er hávært stræti.

Það er lesandanum í sjálfsvald sett að túlka merkingu trommusláttarins."

Ertu tilbúinn í þetta?

Ég hef aldrei verið meira tilbúinn fyrir neitt í lífinu.

Vonandi hefur enginn þurft að horfa á manneskju sem viðkomandi elskar

í gegnum gler.

Ég þarf að segja...

- Hæ. - Hæ.

Alonzo...

Alonzo, við...

Við eigum von á barni.

Ég hefði átt að segja það strax. Við erum ekki gift.

Það hefur meiri merkingu fyrir honum en mér,

en ég skil tilfinningar hans.

Fonny er 22ja ára.

Ég er 19 ára.

Ég er glöð, Fonny.

Ég er glöð. Engar áhyggjur.

Sagðirðu pabba frá því?

- Ekki enn. - Sagðirðu þínu fólki?

Ekki enn, en ekki hafa áhyggjur af því.

Ég vildi bara segja þér það fyrst.

Barn.

Hvað ætlarðu að gera?

Ég ætla að gera það sem ég hef verið að gera.

Ég ætla að vinna fram á lokamánuðinn

og svo sjá mamma og systa um mig.

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur.

Í öllu falli næ ég þér út héðan fyrir þann tíma.

Ertu viss um það?

Ég er alltaf viss um það.

Ég elska þig.

Ég elska þig líka.

Fonny hafði verið í verkmenntaskóla

þar sem krökkum er kennt að búa til alls konar drasl,

eins og spilaborð og bænamottur og kommóður,

sem aldrei verða keyptir.

En Fonny hafði engan áhuga og stakk af,

tók flest verkfærin þaðan með sér.

Hann vann sem kokkur á skyndibitastað svo hann fengi að borða.

Hann fann kjallara þar sem hann gat unnið við smíðar

og hann var meira heima hjá okkur en heima hjá sér.

Þetta var allt svo einfalt.

Læra þetta, smíða hitt,

finna vinnu og vinna þar til hann samsamaðist vinnunni.

En Fonny hafði ákveðið allt aðra leið.

Hann hafði fundið nokkuð sem hann langaði til að gera.

Og það bjargaði honum frá dauðanum sem beið

barna á okkar aldri.

Og þótt hann hafi birst í ýmsum myndum

var dauðinn sem slíkur mjög einfaldur.

Orsökin var líka einföld.

Krökkunum hafði verið sagt að þau væru einskis virði.

Og allt sem þau sáu í kringum sig

sannaði það.

Hæ. Hvernig hefurðu það, vinan?

Hvernig líður honum?

Hann er bara eins.

Hann hefur það fínt.

Hann sendir ástarkveðjur.

Það er gott.

Hittirðu lögmanninn?

Ekki í dag. Ég verð að fara á mánudaginn.

Hefur hann hitt Fonny?

Nei.

Mamma?

Já, vinan.

Mamma...

Syngdu, mamma, syngdu.

Náðu í góðu gleraugun.

- Hvað ertu að gera með þetta? - Hvað sýnist þér?

Hvert er tilefnið?

Þú ert húsbóndinn. Hættu að hafa áhyggjur.

Vitaskuld, frú.

Gott og vel.

Ég velti fyrir mér út af hverju þetta er.

Ekki of mikið fyrir Tish.

Gott og vel.

Hvað er í gangi?

Þetta er sakramenti.

Og nei, ég er ekki búin að missa vitið.

Við erum að skála fyrir nýju lífi.

Tish gengur með barn Fonnys.

Drekkið.

Þetta eru merkisfréttir.

Ætlarðu ekki að skála fyrir barninu, Tish?

Hve lengi hefur þetta gengið?

Um þrjá mánuði.

- Já, ég áttaði mig á því. - Þrjá mánuði?

Áttu við á meðan þið tvö voruð á ferðinni í leit að húsnæði?

Gott og vel.

Tish,

ertu viss um að þú viljir barnið?

Já.

Og Fonny vill það líka.

Þetta er barnið okkar

og það er ekki honum að kenna að hann situr inni.

Það er ekki eins og hann hafi strokið.

Og við höfum alltaf verið bestu vinir

síðan við vorum lítil, pabbi. Þú veist það.

Og við værum gift núna ef þessi kona hefði ekki logið...

Tish, hann veit það.

Pabbi þinn veit það. Hann hefur bara...

Hann hefur bara áhyggjur af þér, ekkert annað.

Þú skalt ekki halda að ég teljið þig slæma stelpu

eða neina slíka vitleysu.

Ég spurði þig bara af því þú ert svo ung.

Og...

Upp með höfuðið, systir.

Fyrir nýja barninu.

Ég vona að það sé strákur.

Pabbi.

Það mun aldeilis skemmta Frank gamla.

Tish, hefðirðu á móti því

að ég segði honum fréttirnar?

Nei, pabbi. Ég hef ekkert á móti því.

Ég væri til í að segja systrunum.

Veistu hvað?

Joe, boðaðu þau öll hingað.

Nei, nei, mér er alvara...

- Mamma. - Það er laugardagskvöld.

Það er mikið eftir í flöskunni. Það er ekki áliðið.

Þegar ég hugsa um það, er þetta besta leiðin til þess.

Boðaðu þau hingað.

Gott og vel. Ég held að þú hafir rétt fyrir þér, ástin.

Fáum þau hingað.

Gott og vel!

Litla systir mín ætlar að eignast barn.

Hæ, Nipsey Russell.

Hæ, hvað er að frétta? Hvað eruð þið að gera?

- Hvað má bjóða þér? - Dreng.

- Fonny. - Fonny.

Hvað?

Dagurinn þegar ég áttaði mig á að Fonny var ástfanginn af mér

var undarlegur.

Það var dagurinn þegar hann gaf mömmu skúlptúrinn.

Ég hellti vatni yfir höfuðið á Fonny

og þvoði honum á bakinu í baðkarinu

og það virðist svo langt síðan.

Ég man ekki eftir að við værum neitt forvitin

um líkama hvors annars.

Fonny elskaði mig ofmikið.

Það þýddi að það hafði aldrei verið neitt tilefni

til að við skömmuðumst okkar.

Við vorum hluti af hvoru öðru,

hold af holdi hvors annars,

sem við tókum sem svo sjálfsögðu

að við hugsuðum aldrei út í það sem hold.

Samt kom það mér ekki á óvart

þegar ég loks skildi

að hann var fallegasta manneskja sem ég hafði séð um ævina.

Ég hef stundum sofið í þessum garði.

Það er ekki góð hugmynd.

Af hverju svafstu í garðinum?

Ég var seinn.

Ég vildi ekki fara heim.

Ég vildi heldur ekki vekja neinn.

En núna á ég mér stað hérna.

Viltu þá borða hérna niður frá eða bíða þar til við komum upp í bæ?

Eða viltu fara í bíó?

Eða viltu fá smá vín,

eða litla köku?

Eða smá bjór?

Eða kaffibolla?

Þú vilt kannski ganga um aðeins lengur

þar til þú ákveður þig?

Komdu.

Já.

Þið vitið að við sjáum ykkur, er það ekki?

Ekki vera að horfa. Hafið augun annars staðar.

Þið eruð ferleg.

- Gott og vel. - Gott og vel.

Ég skal opna.

- Hei! - Hæ.

- Ernestine. - Adrienne.

- Hvað segið þið gott? - Fröken Sheila.

Hæ, gaman að hitta þig.

Verð ég að hringja í Neyðarlínuna til að hitta þig?

- Frábært að sjá þig. - Gott að sjá þig.

Mömmu Fonnys líkaði ekki við mig.

Henni fannst ég ekki nógu góð fyrir Fonny.

Sem þýðir í raun að henni fannst ég ekki nógu góð fyrir hana.

Og að einhverju leyti fannst henni ég kannski

einmitt það sem Fonny átti skilið.

Unga kona.

Svo þú hittir þverhausinn minn í dag?

Já. Hann hefur það fínt. Sendir ástarkveðjur.

Eru þeir nokkuð of harðskeyttir við hann?

Ég spyr þig að þessu

því hann segir þér kannski eitthvað sem hann segir mér ekki.

Leyndarmál elskenda?

Hann þolir þetta ekki, maður sér það.

Komentáře

No comments yet. Be the first to leave one.

Keep it about this subtitle — sync, quality, typos.500 characters left