As primeras 200 linias.
Hver er ég? Viljið þið vita það?
Saga mín er ekki fyrir viðkvæma.
Segi einhver að hún sé skemmtileg...
eða að ég sé venjulegur, áhyggjulaus náungi,
lýgur hann.
En sagan, eins og allar almennilegar sögur,
fjallar um stelpu.
Þessa stelpu úr næsta húsi, Mary Jane Watson,
sem ég hef elskað síðan ég var polli.
Óskandi að ég sæti hjá henni.
Hlunkurinn myndi duga.
Stöðvaðu rútuna!
Þetta er ég.
Biðjið hann að stansa!
Stöðvaðu rútuna!
Stansaðu! Hann hefur elt okkur heillengi.
Taktu leigubíl!
Takk. Fyrirgefðu.
Alger auli.
-Ég held nú ekki. -Þú ert ömurlegur, Parker.
Efri bekkingar,
ekki ráfa um. Farið rakleiðis... Hættu.
Það eru forréttindi að vera hér.
Við erum gestir raungreinadeildar Columbiu-háskólans.
Verið stillt.
Ef ferðin í stjörnustöðina endurtekur sig...
Haldið hópinn.
Upp og inn í húsið.
-Viltu keyra fyrir hornið, Charles? -Af hverju?
Inngangurinn er þarna.
Þetta er ríkisskóli. Ég fer ekki í skólaferð í Rolls.
Skipti ég á honum og smábíl
þótt þú hafir fallið í öllum einkaskólum?
-Ég kaus þá ekki. -Víst.
-Ekki skammast þín fyrir þig. -Ég geri það ekki.
Það er bara...
Hvað, Harry?
Sleppum því.
-Hæ, Harry. -Hvað er títt?
-Þarftu ekki bakpokann? -Takk, pabbi.
-Pabbi minn, Norman Osborn. -Ég hef heyrt margt um þig.
Komdu sæll.
Harry segir að þú sért vísindasnillingur.
Ég er líka hálfgerður vísindamaður.
Ég las greinarnar þínar um nanótæknina.
-Skildirðu þær? -Skrifaði ritgerð um þær.
Mjög gott. Foreldrar þínar mega vera stoltir.
-Frændi og frænka eru stolt. -Komið, þið tveir!
-Gaman að hitta þig. -Sjáumst síðar.
-Hann er ekki sem verstur. -Ekki ef maður er snillingur.
Hann vill ættleiða þig.
Það eru 32.000 tegundir kóngulóa í heiminum.
Þær eru áttfætlur...
Ótrúlegt.
Flottasta rafeindasmásjá Austurstrandarinnar. Magnað.
Áttfætlur úr hópunum þremur
hjálpa þeim í leit að æti.
Eins og Delena-kóngulóin af Sparassidae-ætt,
sem getur stokkið eftir bráðinni.
Fyrir skólablaðið?
Næst er það gjákóngulóin af Filistatidae-ætt,
ættkvísl Kukulkania.
Hún spinnur flókinn vef með mikið þanþol
eða álíka mikið og í háspennuvír í brýr.
-Láttu hann í friði. -Eða hvað?
Eða pabbi hans rekur pabba þinn.
Fer pabbi í mál við mig?
Hvað gengur á?
Opni fleiri þverrifuna falla þeir.
Graskóngulóin veiðir
með svo snöggum taugaviðbrögðum
að sumir telja það vera forskynjun.
Þeir eru fífl.
Kóngulóarskynjun.
Sjáðu þessa kónguló.
Sumar þeirra skipta um lit til að samlagast umhverfinu.
Það er varnartækni.
Því skyldi ég vilja vita það?
Hver vill það ekki?
Í fimm erfið ár hefur rannsóknardeild Columbia...
-Talarðu við hana? -Nei. Tala þú við hana.
Ég hata þessar pöddur.
Þær eru frábærar.
Sammála.
Þær geta skipt um lit
-til að samlagast umhverfinu. -Er það?
Já, það er varnartækni.
-Æði. -Já.
...með því að samræma erfðaþætti þriggja kóngulóa
í 15 erfðafræðilegar ofurkóngulær.
Þær eru 14.
Hvað sagðirðu?
Það vantar eina.
Þeir eru trúlega að rannsaka hana.
Veistu að þetta er stærsta rafeindasmásjá Austurstrandarinnar?
Þú hefur blaðrað undir allri kynningunni.
Lærum nú að hlusta.
Ég þekki ekki fínu einkaskólana...
Má ég taka mynd af einum nemanda?
-Já. -Fínt.
Hvar viltu hafa mig? Þarna?
Það væri fínt.
Ekki gera mig ljóta.
Það yrði útilokað.
Frábært.
-Gott? -Fínt.
Frábært.
Komdu, M.J.
Bíddu. Takk!
Komdu, Parker.
NÝ TEGUND
Við leystum sjónbaugssvifið og þyngdaraflsvandann.
Ég sá svifdrekann.
Það var ekki erindið.
Gott að sjá þig aftur, hershöfðingi.
Hr. Balkan, hr. Fargas.
Alltaf ánægjulegt að fá stjórnina í heimsókn.
Sýndu mér þróunarskýrsluna um afkastaaukninguna.
Innöndunarúði í nagdýrum sýndi 800% aukinn styrk.
-800%? Afbragð. -Aukaáhrif?
Í einni tilraun.
Frávik. Aðrar tilraunir tókust.
Hvað fór úrskeiðis? Hver voru aukaáhrifin?
Ofbeldi, árásarhneigð...
og geðveiki.
-Með hverju mælirðu? -Bara ein tilraun.
Fyrir utan dr. Stromm eru allir sammála
-um tilraunir á mönnum. -Dr. Stromm?
Við verðum að fara aftur á byrjunarstig.
-Á byrjunarstig? -Dr. Osborn.
Ég verð hreinskilinn.
Ég studdi aldrei rannsóknina. Þökkum forvera mínum það.
Hershöfðinginn gaf Quest leyfi
fyrir frumgerð af stoðgrindinni.
-Prófun eftir hálfan mánuð. -Ef svokallaðir afkastaaukar
hafa ekki verið prófaðir farsællega á mönnum
afturkalla ég fjárframlögin sem renna til Quest.
Dömur mínar og herrar.
Og Drottinn sagði: Verði ljós... og það varð ljós.
Ein 40 glóandi vött.
Góður strákur. Guð verður alsæll. Ekki detta á rassinn.
Ég er þegar á rassgatinu, May.
Þegar yfirrafvirkjanum er sagt upp eftir 35 ár
hvað er það annað? Ég er á rassgatinu.
Réttu mér græna diskinn.
Fyrirtækið fækkar starfsfólki
og eykur arðinn.
Þú færð aðra vinnu.
Kíkjum þá í blaðið.
Hvað stendur þar?
Sölumaður tölva, tölvunarfræðingur, tölvugreinir.
Jafnvel tölvur þurfa sálgreini nú til dags.
Ég er 68 ára, of gamall fyrir tölvur og sé fyrir fjölskyldu.
Við Peter elskum þig.
Þú ert ábyrgasti maður sem ég þekki.
Við höfum haft það erfitt áður en alltaf þraukað.
Hæ, elskan. Þú kemur tímanlega í matinn.
Hvernig var í skólaferðinni?
Ég er slappur og ætla að sofna.
-Viltu ekki fá bita? -Nei, takk. Búinn.
Tókstu myndir?
Ég þarf að halla mér. Það er allt í góðu.
Hvað var nú þetta?
Á þessari endurröðunar- rannsóknastofu
notum við gerviríbókjarnasýru til að mata ný erfðamengi
og sameinum erfðaupplýsingar úr þremur kóngulóm
í 15 erfðafræðilegar ofurkóngulær.
Afkastakerfið er ekki tilbúið
og réttlætir ekki þessa tilraun.
Ég bið þig í síðasta sinn. Við getum þetta ekki.
Engan heigulshátt.
Tilraunir eru áhætta.
Gerum þetta síðar með rétta fólkinu og sjálfboðaliða.
-Bíddu í hálfan mánuð. -Hálfan mánuð?
Þá fær Quest samninginn og við verðum gjaldþrota.
Stundum tekur maður málin í sínar hendur.
-Prómaklóraperasínið. -Til hvers?
Hvati þegar gufan fer út í blóðið.
Eftir 40.000 ára þróun
nýtum við ekki enn möguleika mannsins.
Ískalt.
Norman?
GASKLEFI LOFTRÆSTUR
Góður guð.
Góður guð! Norman?
Aftur á byrjunarstig?
Skrýtið.
-Peter? -Já.
Er allt í lagi?
Í besta lagi.
-Nokkur breyting í morgun? -Breyting?
Já, töluverð breyting.
Fljótur. Þú verður seinn.
Gott mál.
-Góður guð! -Varstu ekki veikur?
Mér líður betur.
-Ertu með matarpeninga? -Já.
Við málum eldhúsið síðdegis, Michelangelo.
Pottþétt, frændi. Ekki byrja án mín.
Enga stæla við mig.
No comments yet. Be the first to leave one.